Heimili og skóli - 01.08.1954, Page 9
HEJMILI OG SKÓLI
53
i
i
i
I
I
I
t
&
i
i
©
#
$
$
$
$
$
i
$
$
Snorri Sigfússon
námstjóri
sjötugur.
í®K
Snorri Sigfússon, námsstjóri, er orð-
inn sjötugur. Hann náði þeim áfanga
31. ágúst s.l. Það er nokkuð hár aldur,
en eigi verður það séð á Snorra, að
hann sé orðinn gamall maður.
Síðasti áratugurinn í ævi Snorra hef-
ur verið að mörgu leyti merkilegur og
lýsir þessum sérstæða manni nokkuð
vel. Hann er 63 ára gamall, þegar
hann lætur af skólastjórn við Barna-
skóla Akureyrar eftir 17 ára farsælt
starf. Starfsdagur lians er þá orðinn
svo langur og góður, að það hefði ver-
ið mjög sómasamlegt að hætta þá, og
taka lífinu með meiri ró, það sem eftir
var. En Snorri gerir hvorugt. Hann
velur sér nýtt starf, sem að flestu leyti
er erfiðara fyrir roskinn mann en
skólastjórnin, starf, sem útheimtir
mikil ferðalög í misjöfnum veðrum
og á misjöfnum leiðum. Þetta eitt er
nokkuð óvenjulegt með mann á hans
aldri. Hann hafði auk þess orðið fyrir
því þunga áfalli að missa Jconu sína, og
hrundi þar með að nokkru leyti hið
glaða og hlýja heimili hans. Slíkt áfall
lamar að jafnaði starfsþrekið.
En svo ber það enn við, þegar Snorri
hefur verið eitt ár námsstjóri, að hann
verður fyrir þungu áfalli. Hann tekur
hina illræmdu mænuveiki, sem hér
gekk árið 1948, verður þungt haldinn
og lamast á fæti. F.ngum datt í hug, að
Snorri héldi áfram námsstjórastarfinu
eftir slíkt áfall. Haustið 1949 er hann
svo illa fárinn, að liann liggur rúm-