Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Page 10

Heimili og skóli - 01.08.1954, Page 10
54 HEIMILI OG SKÓLI fastur öðru hvoru, en eftir ótrúlega stuttan tíma er hann farinn að ferðast á milli skólanna, og heima halda hon- um engin bönd. Og svo hefur það ver- ið þessi 7 ár, sem hann hefur gegnt námsstjórastarfi hér norðanlands, að hafi 'hann verið einhvern dag heima, jafnvel þótt hann hafi setið við skriftir frá morgni til kvölds í þágu embættis- ins, hefur honum fundizt hann vera að svíkjast um. Og þessi 7 ár hefur hann skrifað 1200 bréf. Þar í eru þó ekki talin fjölrituð dreifibréf. Þetta lýsir nokkuð vel starfi Snorra. Ég er sæmilega laus við öfundsýki, en hef stunduð öfundað Snorra af þess- um brennandi, gjósandi ákafa og kappi. Þessu óslökkvandi lífsfjöri, starfsorku og starfsvilja, sem hvorki erfiðleikar né aldur hafa unnið á. Síðastliðið haust, þegar Snorri var að hefja yfirreið sína um Norðurland, veikist hann alvarlega og verður að leggjast undir mikinn uppskurð. Þá er hann einum vetri miður en sjötugur. — Nú hættir Snorri, — sögðu menn. Hann fær varla þá heilsu, að hann geti tekið upp erfið ferðalög á ný eftir þetta áfall. — En hvað skeður? Eigi miklu síðar spyrzt til Snorra norður á Melrakkasléttu, þar sem hann er tek- inn að heimsækja skóla, eins og ekkert hafi í skorizt. Er svo skemmst frá að segja, að hann heimsótti alla sltóla á námsstjórasvæði sínu í vetur, boðaði til funda í flestum byggðalögum og flutti erindi um uppeldis- og skólamál. Það er að vísu ekkert nýtt, að hann iheimsæki flesta eða alla skóla á náms- stjórasvæði sínu, því að það mun hann hafa gert á hverju ári þessi 7 ár, og suma oftar en einu sinni. Annað taldi hann ekki viðunandi. Á sumrin skrapp hann svo oft til útlanda og korn að jafnaði heim fullur af nýjum og gömlum áhugamálum. En svo kemur loks að því, að laga- bókstafurinn býður Snorra að hætta öllu þessu umstangi fyrir skólana. Og ekki þýðir að deila við dómarann. SnoiTÍ segir af sér nú á þessu hausti. jæja, þá er nii Snorri hættur, — segja menn. Nú getur hann farið að hvíla sig, lifa af eftirlaunum og hafa náðunga daga. — En Snorri hættir ekki. — Hann hlýðir að vísu lögunum, og lætur. námsstjóraembættið öðrum eftir, en hann byrjar bara á nýju verk- efni, nýjum áfanga í lífi sínu, starf andi lífi — og fyrir skólana og æskuna skal það vera. Hann gerist brautryðj- andi mjög mikilvægrar starfsemi, sem er í nánum tengslum við skóla og upp- eldi, sem sé sparifjársöfnun í barna- skólum — sparnaðaruppeldi — en á því hefur ef til vill aldrei verið svo knýj- andi nauðsyn sem einmitt nú. Við félagar Snorra, sem höfum þekkt liann lengst og höfum sjálfir kaldara blóð, erum hættir að verða hissa. í lífi Snorra er alltaf eitthvað að gerast. Þar er aldrei kyrrstaða, aldrei nein lognmolla. Ég hef átt tal við marga kennara, sem notið hafa náms- stjórnar hans, og ber þeim öllum sam an um, að þeir hafi haft mikið gagn að hverri einustu komu Snorra í skólana. Með honum kemur alltaf einhver hressandi gustur. Hann er fullur af nýjurn hugmyndum og nýjum tillög- um. Hvar sem Snorri kemur í skóla, fylgir því. alltaf einhver hreyfing, sem rótar upp í hreiðri vanans og hvers- dagsleikans. Kennarar eru stöðugt í

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.