Heimili og skóli - 01.08.1954, Síða 20
64
HEIMILI OG SKÓLI
þeir stofnuðu þatna í sveitinni árið
1917, hafa verið sér og öðrum ungling-
um hollur og góður skóli.
Þegar Eiríkur var tvítugur, fór hann
í alþýðuskólann á Eiðum, og varð þar
fyrir miklum og góðum áhrifum eins
og fleiri. Hann hafði þá hugsað sér að
verða barnakennari, og ætlaði í kenn-
araskólann þegar að loknu námi á Eið-
um, en af því varð þó ekki af sérstök-
um ástæðum. Gerðist liann nú far-
kennari í Skriðuhreppi haustið 1928
og var það í fjögur ár. Þá hætti hann
kennslu og stundaði nú búskap næstu
6 ár, lengst í Skógurn. En alltaf leitaði
hugurinn til kennslustarfanna, og svo
varð það úr, að haustið 1929 settist
hann í 3. bekk kennaraskólans, þá 35
ára gamall, og lauk þaðan prófi vorið
eftir.
Næstu 3 ár var Eiríkur kennari við
Barnaskóla Húsavíkur. En haustið
1943 fær hann stöðu við Barnaskóla
Akureyrar, og Itefur verið kennari við
þann skóla síðan. Eiríkur Stefánsson
er úrvalskennari, ntjög fjölhæfur,
áhugasamur og síleitandi að einhverju
nýju og betra. Hann hefur t. d. tekið
saman handbók í átthagafræði ásamt
Sigurði Gunnarssyni, skólastjóra í
Húsavík, og er það nýjung á sviði ís-
lenzkra kennslubóka.
Eiríkur er ágætlega gefinn, athugull
og glöggur, og sámvizkusamur og
duglegur kennari með afbrigð-
um. Þó að hann sé alvörumaður nokk-
ur að eðlisfari og vegna uppeldis síns,
er hann þó glaður og góður félagi og
samvinnuþýður í bezta lagi.
Þó að Eiríkur hafi, fyrir rás viðburð-
anna, lent á ,,mölinni“, þá er ltann
samt tengdur órjúfandi böndum við
gróður jarðar og dýr. Það er engin til-
viljun, að ltann er formaður Dýra-
verndunarfélags Akureyrar og í
stjórn Skógræktarfélags Akureyrar og
áhugasamur og virkur í báðum þessum
félögum. Ég óska þessum vini mínum
og samstarsmanni allra heilla á þessum
vegamótum, og þakka Itonunt fyrir
góða og örugga samfylgd. Hann er enn
ungur maður. Hann er enn barn ís-
lenzkrar náttúru. Hann hefur enn
gaman af að starfa, og verður því vafa-
laust langlífur. Kvæntur er hann
ágætri konu, Laufeyju Haraldsdóttur.
Eiga þau hjón einn son, Hauk, hinn
mesta efnismann, sein nú er skrifstofu-
maður hjá Klæðaverksmiðjunni
Gefjun á Akureyri.
H. J. M.
—X—.
Það leið óðum að afmælisdeginum hans
Kalla. Og hann gat varla uni annað hugsað
en afmælið, og hvað hann myndi nú fá í af-
mælisgjöf. Hans inikli draumur var að lá
reiðhjól, og hann hafði meira að segja trúað
mömmu sinni fyrir því.
Svo var það dag einn, þegar hann var í
skólanum, og tími í kristnum fræðum stend-
ur yfir, að hann getur ekki stillt sig um að
minnast á þessa ósk sína við kennslukonuna.
Hún grípur þetta tækifæri fegins hendi og
notar það sem texta í alvarlegri ræðu, þar
sem hún sýnir börnunum fram á, hversu það
sé fánýtt að safna jarðneskum gæðum. „Hin
mesta hamingja í þessu lífi er það,“ segir
hún, „að eiga fróma og góða sál.“
Þegar Kalii kemur lieim seinna um daginn,
segir hann við mömmu sína:
„Mamma, nú langar mig ekkert til að fá
reiðhjól í afmælisgjöf."
„Jæja, hvað langar þig þá til að fá?“
„Eg vil heldur eiga góða og fróma sál,“
segir Kalli litli.