Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Síða 21

Heimili og skóli - 01.08.1954, Síða 21
HEIMILI OG SKÓLI 65 Einkennileg erfðaskrá í lok síðustu aldar sást undarlegur maður á götum Flensborgar. Þetta var ríki verðbréfasalinn Peter Cristian Petersen, — einmana, gamall, sérvitur piparkarl. Hann var alltaf í grænum veiðimannafrakka og trosnuðum bux- um. Hann hafði alltaf risastóra, græna regnhlíf — og í hvert skipti og hann staðnæmdist við barnaskólann og at- hugaði leiki barnanna gegnum girð- inguna, voru þarna alltaf einhverjir slæmir strákar, sem gerðu gabb að honum. En þar voru líka mörg góð og vel uppalin börn, sem heilsuðu gamla manninum kurteislega. Þá var hann vanur að spyrja þau um nafn og heim- ilisfang. Enginn vissi, hvað hann ætlaði að gera við þessi nöfn. Líklega safnaði hann mannanöfnum eins og ýmsu öðru. Margir höfðu meðaumkvun með þessum manni, sem þrátt fyrir auðæfi sín fann aldrei hamingju í lífinu, — þá, sem aðeins er að finna í ástinni og tindrandi barnsaugum. Þann 13. nóvember 1900 dó Peter snemma um morguninn. Og seinna þennan sama dag kom skiptaráðand- inn, Jóhan’n Nikolaj Dammann, yfir í íbúð hans til að opna erfðaskrá, sem vitað var, að hann lét eftir sig. Dammann hafði ekki lesið mikið af erfðaskránni, þegar hann varð ntjög undrandi og lét kalla á fulltrúa sinn. I>ví að það, sem hann hafði stafað sig fram úr af hinni hlykjóttu skrift öld- ungsins, var svo óvenjulegt, að hann trúði varla sínum eigin augum. Það var eins og að lesa niðurlag á ævintýri frá gömlum tímum. Og þó var þetta raunveruleiki: Gamli sérvitringurinn, sem var meiri einstæðingur en nokk- urn hafði grunað, sýndi nú eftir dauða sinn hve hjartagóður hann var. Hann arfleiddi hvorki neina velgjörða- stofnun né fjarlæga ættingja að hin- um ntiklu eignum sínum, heldur 110 litlar skólastúlkur í Flensborg, sem hann þekkti ekki annað en hafa talað við þær á götunni eða þekkt þær f sjón, þegar þær heilsuðu eða hneigðu sig fyrir honum. „Öll auðæfi mín,“ skrifaði Peter, „gef ég mínum 110 kæru bömum. Peningunum á að skipta þannig, að enginn þurfi að öfunda annan, og að börnin geti haft ánægju af þeim alla ævi. Hver af þessum eftirtöldu stúlk- um skal fá um hver jól 30 mörk, með- an þær lifa, og hvar sem þær eiga heima. . . .“ og við erfðaskrána var festur listi með nöfnum og heimilis- föngum hundrað og tíu kurteisra stúlkna — fátækra og ríkra — sem fengu nú að vita hjá foreldrum sínum, að þær væru erfingjar að 200.000 gull- mörkum látna einstæðingsins. Og þannig varð það. í fimmtíu og þrjú ár hefur síðasta ósk Peters Cristans Petersens verið uppfyllt um hver jól. í meira en hálfa öld hefur pósturinn fært þessum stúlkum, með- an þær lifðu, þessa jólagjöf, hvar sem þær voru. Og eflaust hafa þær oft sent

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.