Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 29

Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 29
HEIMILI OG SKÓLI 73 Frá móti norðlenzkra barnakennara Dagana 30. maí til 3. júní s.l. var haldið mót norðlenzkra barnakennara á Akureyri. Þátttakendur voru 65. Nokkrir þeirra bjuggu í barnaskóla- húsinu, þar sem mótið var haldið, og var þeim búið þar sameiginlegt mötu- neyti. Mótið var sett kl. hálf-fimm síðdeg- is, sunnudaginn 30. maí, í samkomu- sal barnaskólans, af Jóni Þ. Björnssyni, formanni Sambands norðlenzkra barnakennara. Forseti mótsins var kjörinn Snorri Sigfússon, námsstjóri. Aðalviðfangsefni þessa rnóts var starfrænt nám í bamaskólum. Auk þess voru tekin til meðferðar ýmis önnur uppeldis- og skólamál, svo sem reikningskennsla, skólasöngur o. fl. Mót þetta var einkum hugsað sem fræðslu- og kynningarmót. Og í sam- ræmi við það voru flutt mörg erindi. Nokkur voru eingöngu ætluð kennur- um til íhugunar og umræðu, en hin að gera okkur vonir um, að koma í veg fyrir meiri sýkingu, vinna á þess- um sjúkdómseinkennum, verðum við að grafa fyrir æturnar, leita að ástæð- unum, sem liggja til þess, að barnið getur ekki sagt satt. Þess vegna verðum við að byrja allar okkar spurningar á einu orði: Hvers vegna? Lauslega þýtt úr dönsku. H. J. M. voru kvölderindi, og var almenningi gefinn kostur á að sækja þau. I sambandi við mótið var sýning á skólavinnu bama úr eyfirzkum skól- um, svo sem handavinnu, teikningu, vinnubókum og skrift. Auk þess var mjög fjölbreytt sýning á kennslubók- um og handbókum fyrir kennara, flestum frá Bretlandi og Norðurlönd- unum. í sambandi við mót þetta var haid- inn aðalfundur S. N. B. Auk venju- legra aðalfundarstarfa voru þar rædd ýmis mál og gerðar ályktanir. Kosin var ný stjórn til næstu tveggja ára. Hana skipa: Björn Daníelsson, skóla- stjóri á Sauðárkróki, formaður, Garð- ar Jónsson, Hofsósi, og Magnús Bjarnason, Sauðárkróki. Aðalfundur- inn samþykkti að gera Snorra Sigfús- son að heiðursfélaga sambandsins. Einn daginn fóra um 50 þátttakend- ur mótsins skemmtiferð í Öxnadal og gróðursettu 1200 trjáplöntur í Minn- ingarlundi Jónasar Hallgrímssonar að Steinsstöðum. Með í förinni var Bern- harð Stefánsson, alþingismaður. Bauð hann gesti velkomna á æskustöðvar Jónasar, sagði síðan frá uppvexti hans og æskuheimili á Steinsstöðum og skýrði örnefni í dalnum í sambandi við ljóð hans. Mun Bernharð einn fróðastur núlifandi manna um þessi efni. Njáll Bjarnason, kennari, flutti Dalvísur Jónasar. Auk þess voru

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.