Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 36

Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 36
80 HEIMILI OG SKÓLI Þekking er vald - Menntun er máttur Ég hef stundum heyrt því haldið fram, að kennarar þyrftu ekki að vita ýk’ja mikið meira en það, sem þeir ættu að kenna nemendum sínum. Þetta er hinn mesti misskilningur. Menntunin gefur kennaranum vald, ekki til að drottna yfir nemendunum, heldur til að hafa áhrif á þá til góðs. Þekkingin gefur kennaranum sjálfs- traust, gerir framkomu hans örugga og frjálsmannlega gagnvart nemendun- um, og eykur þannig á persónuleika hans og áhrifamátt. Hinn, sem finnur til vanmáttar síns, verður hikandi og óframfærinn og á það á hættu, að nem- þau bæði um skeið. Skólastjóri þakk- aði báðum þessum nefndarmönnum fyrir frábærlega góða samvinnu og góðvild í garð skólans alla tíð og bauð hina nýju fræðsluráðsmenn velkomna til samstarfs. Að lokum þakkaði hann alveg sérstaklega einum kennara langt og gott starf, en það er frú Elísabet Friðriksdóttir, sem verið hefur fastur stundakennari í handavinnu samtals í 25 ár við skólann. Er hún nú að láta af starfi og flytja úr bænum. Að lokum afhenti skólastjóri bama- prófsskírteini, og kvaddi börnin með stuttri ræðu, og lauk ræðu sinni með þessum orðum: „Skólinn verður fátækari, þegar þið hverfið héðan, en þjóðfélagið ríkara. Þannig á það að vera. Það á að vera hið mikla og göfuga hlutverk skólans, að stuðla að því, að þjóðfélagið eignist sem flesta góða og nýta þegna.“ endurnir nái valdi yfir honum. Það verða því aldrei gerðar of miklar kröf- ur um menntun kennara. Hitt skal þó játað, að við höfum átt nokkra úrvals kennara, sem ekki höfðu alið langan aldur á skólabekk. En þeir hafa, þrátt fyrir allt, átt þá menntun hjartans, sem dugði þeim til góðra áhrifa. Og hitt er einnig víst, að þekking og lær- dómur geta ekki gert alla að góðum kennurum. Það hrekkur ekki alltaf til að vega upp á móti öðrum göllum, sem þeir kunna að hafa. En kennari verður ekki aðeins að kunna mikið í sínum fræðum, til þess að hafa alltaf fullkom- ið vald á kennslu sinni. Hann má held- ur ekki vera úti á þekju í málefnum samtíðar sinnar. Hann verður, og öll- um öðrum tfremur, að skilja þá samtíð, sem hann vinnur fyrir, kosti hennar og galla, alveg eins og honum er það lífs- nauðsyn að skilja nemendur sína. Það má segja að menntun kennara sé nú orðin góð, 6—7 ára nám. En næsta skrefið verður að veita kennur- um aðgang að Háskóla íslands til að afla sér þar framhaldsmenntunar. Það mun þó ekki rétt að gera það að skyldunámi til að öðlast kennararétt- indi. En kennarar, sem hljóta þar framhaldsmenntun, munu að jafnaði sitja fyrir stöðum, svo að það ætti að vera nokkuð rík ástæða til að ætla, að kennarar almennt myndu, þegar fram líða stundir, telja sér ávinning í því að stunda þar minnst eins vetrar háskóla- nám. H. J. M.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.