Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Side 37

Heimili og skóli - 01.08.1954, Side 37
HEIMILI OG SKÓLI 81 Snorri Sigfússon, kvaddur á móti S.N.B. vorið 19 54 Ég hef löngum dáð þá, sem árin aldrei beygja, — sem ellin færir þroska, en hvorki glöp né kröm, — sem aldrei lærðu að hopa og hvergi af stefnu sveigja en hvesstu brún í élin, þegar f jöldinn skreið í höm. Við þekkjum slíka garpa frá okkar eigin ströndum, — þeir ungir lögðu í víking, — í hug brann æskuglóð. Þeir græddu hvorki metorð né auð í öðrum löndum en auðguðust að víðsýni og trú á land og þjóð. / Með fjársjóð dýrra vona þeir heim til aettlands héldu, því heima biðu verkefnin, mörg og þung og stór. En hugsjónir og manndóm við silfri ei þeir seldu, því sáu menn og skildu hvar brautryðjandinn fór. Þeir lögðu hönd á plóginn, þeir lyftu Grettistökum, þeir lögðu stein í vörður, í einstig hjuggu spor, þeir brutu vanans helsi, þeir hnekktu þrældóms tökum, þeir hrundu svefnsins drunga, en glæddu von og þor. Þótt höndin slitni og lýist, er sálin ung og ýtur, — þótt ævisumri halli, er starfsins tími enn. Og þegar svefnsins bróðir að lokum leiknum slítur, þeir leggja frá sér spilin og kveðja, — eins og menn. En verkin þeirra standa og varða nýjar leiðir, — þeir vegir liggja í sigurátt í gegnum starf og þraut. Frá bálum þeirra hugsjóna enn sig eldur breiðir, sem yljar nýrri kynslóð — og varpar ljóma á braut. —

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.