Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 40

Heimili og skóli - 01.08.1954, Blaðsíða 40
84 HEIMILI OG SKÓLI SIGURÐUR GUNNARSSON: Listin að lifa Kafli úr skólaslitaræðu Kæru fullnaðarprófsbörn. Að lokum langar mig til að beina nokkrum orðum til ykkar sérstaklega. í huga mínum er það ætíð hátíðleg stund, þegar fullnaðarprófs- bekkur kveður skólann, þegar böm, sem við kennararnir erum búnir að vera sam- vistum við í sjö ár, eru að kveðja. Þá er jafnan svo margs að minnast. Otal atvik frá liðnum samverustundum hópast fram í hugann. Flestra þeirra er ljúft að minn- ast. Og þótt sum kunni ef til vill að setja einhvern skugga á minningar samveruár- anna, er gjarnan reynt að gleyma þeim. Efst í hugum okkar kennaranna er ætíð þakkíæti til ykkar fyrir samstarfsárin liðnu og einlægar óskir um það, að þið megið ætíð ganga á guðs- og gæfuvegum, því að þá má vissulega vænta þess, að þið verðið góðir og nýtir þegnar í okkar kæra þjóðfélagi. En slík er ósk hvers kennara. í vor eru merkileg tímamót í lífi ykkar flestra í tvennum skilningi. Þið ljúkið fullnaðarprófi og segið skilið við bama- lærdóminn, — og þið verðið fermd eftir tiltölulega fáa daga, eftir því sem ég bezt veit. Ég leyfi mér að minna ykkur sérstak- lega á ferminguna, minna ykkur á, að það er heilög athöfn, sem á að geta haft ómet- anleg áhrif á æviferil ykkar, ef þið eruð nógu þroskuð til að skilja hana rétt. Það er heilög athöfn, þegar þið vígið líf ykkar kristilegri breytni og hugarfari. Ég treysti því, ungu vinir, að þið reynið að gera ykk- ur það að fullu ljóst, og að þið látið aldrei áhrif þeirrar stundar þurrkast burt úr vit- und ykkar. Látið þau heit, sem þið þá vinnið, vera sem skæran vita á vegum ykkar. Og látið þann skæra vita, hina kristilegu lífshugsjón, varpa ljósi sínu yfir líf ykkar allt og framkomu. Þá verðið þið öll elskuleg og eftirsótt, hvar sem þið dveljið, og hvað sem þið takizt á hendur. Já, þá verðið þið einmitt þeir menn og konur, sem bærinn okkar þarfnast og þjóðin öll. Á slíkum tímamótum sem þessum, er hverju ungmenni nauðsynlegt að nema staðar og gera sér fullkomlega ljóst, að barnsárin, með öllum sínum léttleika og gáska, öllu sínu barnslega hugsunarleysi, eru nú að hverfa og alvörumeiri tímar, þroska- og fullorðinsárin að taka við. Já, lífið sjálft, með öllum sínum önnum og skyldum, — þetta jarðlíf, sem getur verið svo yndislegt, og er svo yndislegt, ef við aðeins erum menn til að skilja það rétt og taka skynsamlega því, sem að höndum ber. — Til er gamalt spakmæli, sem segir svo: Listin að lifa, hin erfiðasta, nauðsynleg- asta og æðsta list allra lista, er framar öllu listin að hugsa, — að hugsa frjálslega, af einlægni, djörfung og alvöru. — Nú í vor þurfið þið fyrst í fullri alvöru að gera ykk- ur Ijóst, að þið verðið að læra þessa list, ef vel á að fara. Vafalaust munu mörg ykkar stíga einhver víxlspor ,eins og margan góðan mann hendir, áður en þið hafið lært lærdóma lífsins til hlítar. En eftir þeim kynnum, sem ég hef af ykkur, treysti ég því, að þið getið öll lært listina að lifa, — lært að hugsa frjálslega, af einlægni, djörf- ung og alvöru. Þá látið þið aldrei blekkjast af neinni þröngri skoðana- og sérhags- munaklíku, þá eltið þið aldrei sjúka tízku samtíðar ykkar í hvaða formi, sem hún birtist, — þá kunnið þið að greina kjarn- ann frá hisminu í hverju sem er. — Við þurfum öll að trúa því, ungu vinir, að við séum í heiminn komin til þess að inna af höndum eitthvert ákveðið hlutverk í lífinu, og leysa það af hendi eftir allra beztu getu og samvizkusemi. Þá trú vildi ég óska að

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.