Heimili og skóli - 01.04.1962, Qupperneq 6

Heimili og skóli - 01.04.1962, Qupperneq 6
34 HEIMILI OG SKÓLI brautir. Þess vegna held ég, að þessi hreyfing hafi leitt gott eitt af sér inan skólanna, þegar menn höfðu hlaupið af sér liornin og lært af reynslunni. í heimilunum varð hún örlagaríkari. Eins og nærri má geta, var þessari kenningu tekið með miklum fögnuði af þeim hluta foreldra víðs vegar um lönd, sem ekki tók foreldrahlutverk sitt allt of hátíðlega. Þeir höfðu með einu pennastriki verið leystir frá því óskaplega striti, stríði og áhyggjum, sem því fylgir að ala upp börn, að minnsta kosti að verulegu leyti. Eftir sem áður þurfti auðvitað að gefa krökkunum að borða og klæði á kropp- inn, en vandamál agans var leyst í eitt skipti fyrir öll — bara að láta börnin ráða sér sjálf. Hvílíkur gleðiboðskap- ur! Og svo var tekið að lifa eftir liinum nýja sið. Nú gátu foreldrarnir andað léttara og lyft sér upp í stað þess að sitja alla daga yfir krökkunum. En Adam var ekki lengi í Paradís. Einn góðan veðurdag vöknuðu foreldrarnir við það, að þeir voru ekki lengur hús- bændur á sínu heimili. Börnin höfðu tekið þar að sér alla stjórn, sem var sannarleg óstjórn. En þá hefst síðasta stigið í þessari þróun, en það var ör- væntingarfull tilraun margra foreldra til að ná völdunum á ný með tilheyr- andi skömmum og refsingum. Þessi þróun hefur verið hér nokkuð ýkt og frá henni skýrt í mjög stórum dráttum, en efnislega er hún rétt, þótt hún sé hér látin gerast á styttri tíma en í raun. Því miður tók það foreldra ekki svona stuttan tíma að átta sig á, hvað var að gerast í raun og veru á heimili þeirra, og það er mála sannast, að sumir hafa varla gert það enn. Börn þarfnast ekki fyrst og fremst frelsis. Það þarf þroska til að njóta þess, svo að vel fari, en þau þarfnast handleiðslu og öryggis. Það tekur kannski ekki svo langan tíma að steypa af stóli gamalli dyggð eins og hlýðninni, en það tekur óra- langan tíma að koma henni örugglega í sæti sitt aftur. Því er hins vegar ekki að neita, að uppalendur á öllum öld- um, og jafnvel foreldrar, hafa misnot- að þessa dyggð herfilega og gert hana að skálkaskjóli ýmiss konar harðneskju og jafnvel giimmdar í garð barnanna. Hún hefur verið notuð til að ala upp í þeim þrælslund, og hún hefur verið notuð til að gera börn að vinnuþræl- um og þægilegu verkfæri í höndum fullorðinna manna. Það er því ekki alveg út í hött, að menn vildu hrinda hlýðninni af stóli sem tákni gamallar harðneskju. Svona má misnota dyggðir í þjón- ustu hins illa. „Hann fór með þeim til Nazaret og var þeim hlýðinn,“ stendur þar. Hlýðnin er í eðli sínu dásamlegt tæki eða öllu heldur tækifæri, eiginleiki, sem höfundur lífsins leggur í brjóst hverju barni. Hann fær hverjum for- eldrum þetta tækifæri til að ala upp góða og batnandi menn. Þessi sveigj- anleiki barnseðlisins til hlýðni við vilja foreldranna er dásamleg vöggu- gjöf, en hún leggur óskaplega ábyrgð á herðar uppalandans. Jafnvel nýfædda barnið í vöggunni á sinn vilja. Hlýðni er ekki fólgin í því að brjóta þennan vilja. Það er ekki uppeldi. Vandinn er

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.