Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 8

Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 8
36 HEIMILI OG SKOLI framan. Það er hinn mesti kjörgripur, sem um getur í mannlegu lífi og mann- legum samskiptum, en það hefur verið misnotað og misskilið meir en flest önnur gæði lífsins. Algjört frelsi er ekki til, ekki einu sinni í hreinu villi- mannsástandi, þar sem hver má gera það, sem hann vill. Frelsi í uppeldi er heldur ekki til. Takmörkun á frelsi er siðferðisleg og menningarleg nauðsyn. Skilningur á þessu er hluti af þroska hvers manns, hverra foreldra. Um þetta verða ekki gefnar neinar tæm- andi reglur. Börn hafa gott af að láta eitthvað á móti sér. Það er kannski einhver mesti veikleiki okkar, að börn eru ekki vanin á að láta á móti sér. Þau lifa við of mikið meðlæti. Þarna mega foreldrar vara sig. Ég vil svo að lokum vara foreldra við einu: Þeir mega aldrei kaupa börn til hlýðni eða eftirlátssemi. Þá geta skapast ýmsar óvenjur, sem verða að vana, svo sem sælgætisát í ýmsum myndum, og verður þá seinni villan verri hinni fyrri. H. J. M. 1 handai’innustofunni. Ljósm. P. Gunnarsson.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.