Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 14

Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 14
42 HEIMILI OG SKÓLI urgeirsson flutti ávarp um starfs- fræðslu og gildi vinnunnar. Ólafur Gunnarsson ræddi við leiðbeinendur um tilhögun dagsins. Barnakór Odd- eyrarskólans söng nokkur lög undir stjórn Jakobs Tryggvasonar. Minna spurt um iðnað. Starfsfræðslan fór fram í 14 stofum skólans. Flestir spurðu um flugmál eins og áður, eða um 220 unglingar. Meðal annarra var þarna flugumferð- arstjóri og flugfreyja, sem kom frá Reykjavík. Þá spurðu 120 stúlkur um hjúkrunarstörf, 90 piltar um lögreglu- og umferðarmál. Um stýrimannaskól- ann og stýrimannanámskeið spurðu 53, um loftskeytastarf 48, um læknis- fræði 41 og um íslenzk fræði og erlend mál 39. Um aðrar greinar spurðu færri. Áberandi var, hve minna var spurt um iðngreinar nú en áður. Og er það ekki heppileg þróun í iðnaðar- bæ. Kvikmyndir og skoðun vinnustaða. Þá var fræðslusýning Samvinnu- skólans undir stjórn Vilhjálms Ein- arssonar mjög mikið sótt. Skoðuðu hana 250 unglingar. Voru sýndar lit- skuggamyndir úr starfi Samvinnuskól- ans í Bifröst með skýringum af segul- bandi. I sambandi við starfsfræðsluna voru sýndar þrjár kvikmyndir. Um hjúkr- unarnám, skipasmíðar og íslenzka lit- kvikmyndin „Sjósókn og sjávarafli“. Margir unglingar skoðuðu flugturn- inn nýja á Akureyrarflugvelli. Af vinnustöðvum skoðuðu flestir ullar- verksmiðjuna Gefjuni og skóverk- smiðjuna Iðunni. Þá bauð Akureyrarkaupstaður starfs- mönnum dagsins til kaffidrykkju að Hótel KEA. Stefán Ág. Kristjánsson framkv.stj. þakkaði leiðbeinendum dagsins og stjórnaði umræðum. Sér- staklega þakkaði hann aðkomumönn- unum Ólafi Gunnarssyni, Vilhjálmi Einarssyni og Maríu Jónsdóttur, flug- freyju komu þeirra hingað. Þessir tóku til máls: Ólafur Gunnarsson, Vil- hjálmur Einarsson og Björn Stefáns- son, skólastjóri, fluttu stutt ávörp, og Jón Rögnvaldsson, garðyrkjuráðu- nautur, minnti á hve erfitt væri að fá vinnu handa unglingspiltum hér í bænum á sumrin. Auk bæjarbúa sóttu starfsfræðslu- daginn 43 unglingar úr Ólafsfirði undir stjórn Björns Stefánsonar, skóla- stjóra. Lauk þar með starfsfræðsludegin- um, sem hafði verið í alla staði ánægju- legur og verksvið hans fjölbreyttara en áður. Jóhannes páfi 23., sem sagður er talsverð- ur húmoristi, sagði eitt sinn að það væri hægt að leggja heilsu sína í rústir á þrennan hátt: með víni, konum eða landbúnaðarstörfum. „Faðir minn valdi það, sem var sízt æsandi af þessu þrennu, en hann var bóndi.“

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.