Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 11

Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 11
HEIMILI OG SKÓLI 39 hann einnig þráð að vera félagi, jafn- ingi og sálunautur konu sinnar, hann getur jafnvel haft þörf fyrir að leita hlýju og öryggis í móðurfaðmi liennar. Þannig mætti lengi telja og nefna mörg afbrigði, en þess gerist ekki þörf. Meginmáli skiptir að hafa í huga, að maðurinn er yfirleitt marglyndur og sundurlyndur. Hin meðvituðu markmið og óskir eru ekki nema lítill hluti af sálarlífi hans. Ómeðvitaðar þrár og þarfir mega sín mikils og skjóta upp kollinum, þegar minnst vonum varir. Þær trufla hina samfelldu rás tilverunnar og því reyna menn að reka þær á flótta, þó að sjaldan takist það alveg. Hver einstaklingur reynir mikið til að finna þeim þörfum farveg og út- rás, sem orðið liafa utanveltu við meg- inþráð persónuleikans. Sumir finna þann farveg í tómstundadundi sínu, aðrir með öðru móti. Og í samlífi hjóna skapast einnig ein persónuheild með tveimur þátttakendum. Þar verð- ur einnig margt út undan. Ef ekki á að lenda í árekstrum, þarf einnig að finna því farvegó Sá farvegur verður oft og tíðum börnin. Óheilbrigð til- finningatengsl foreldra og barna, sem leiða til erfiðleika hjá börnunum, stafa einmitt oft af því, að börnin verða far- vegur fyrir ómeðvitaðar tilfinningar foreldranna, en þær tilfinningar rekast á við hinar meðvituðu og viðurkenndu tilfinningar. Freistandi er að reyna að útskýra þetta með dæmi, sem þó verður að vera tilbúið. Segjum, að eiginmanni finnist hann skorta blíðu og nærgætni hjá konu sinni. Uppbótar getur hann leitað með því að gerast sérlega elskur að dóttur sinni. Þetta getur hins vegar leitt af sér, að móðurinni finnist hún vera vanrækt á kostnað dóttur sinnar, fyllist afbrýðissemi í garð hennar og svipti hana þeirri móðurblíðu, sem hún hefur þörf fyrir. Vilji eiginkonan hefna sín á manni sínum eða gera hon- um gramt í geði, getur hún gert það með því að refsa dótturinni fyrir eitt eða annað smáræði. Eiginmaðurinn getur látið krók koma á móti bragði með því að gera refsinguna að engu. Þegar þessu líkt samspil er hafið, hafa foreldrarnir að sjálfsögðu misst, upp- eldið út úr höndunum á sér.Það furðu- legasta er þó, að foreldrarnir gera sér sjaldnast grein fyrir, að samspil sem þetta eigi sér stað. Það er þeim yfirleitt ómeðvitað. Og þar sem það gegnir á- kveðnu hlutverki í samlífinu og stuðl- ar að jafnvægi, fölsku jafnvægi að vísu, eiga þau oftast mjög erfitt með að við- urkenna það. Þessum þönkum skal nú lokið að sinni. Af þeim mætti e. t. v. sjá, að helzti Þrándur í Götu góðs uppeldis er varla fyrst og fremst, að fólk skorti reglur, ráð og boðorð um meðferð barna. Vandinn er fólginn í tilfinn- ingalífi mannsins, marglyndi þess og sundurlyndi, fjölbreytni þess og hreyf- anleika. Vissulega er þetta eitt af að- alsmerkjum mannsandans, án þeirra væri hann naumast annað og meira en stirð trébrúða. En sá bögull fylgir skammrifi, að það verður manninum sjálfum og afkvæmi hans til hnekkis, nema því aðeins að hann þekki eðli sitt, viðurkenni það og finni því far- vegi, sem samrýmanlegir eru skyn- semi og réttlætisvitund.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.