Heimili og skóli - 01.04.1962, Síða 12
40
HEIMILI OG SKÓLI
Leiábeint um 96 starfsgreinar
Æskulýðsheimili templara á Akur-
eyri gekkst í þriðja sinn fyrir starfs-
fræðsludegi 1. apríl sl., og gáfu þar
samtals 65 menn leiðbeiningar um 96
starfsgreinar, sem ungt fólk getur átt
um að velja í þjóðfélaginu. Sóttu starfs-
fræðsluna nokkur hundruð unglinga,
þar á meðal 43 úr Ólafsfirði. Skipu-
lagði Ólafur Gunnarsson störf dagsins.
482 unglingar spurðu.
Daginn áður, laugardaginn 31. marz,
flutti Ólafur Gunnarsson erindi í
Borgarbíó, er hann nefndi „Æskan á
kjarnorkuöld“. Ræddi hann þar um
greindarmælingar barna, er þau hefja
nám, að unglingar yrðu í sama skóla
allt skyldunámið, og nauðsyn þess, að
skólastarfið miði að ákveðinni mann-
gildishugsjón. Á eftir erindinu var
sýnd íslenzka litkvikmyndin „Sjósókn
og sjávarafli“. Á annað hundrað
manns var á samkomunni.
Á sunnudaginn var leiðbeint í 96
starfsgreinum af 65 leiðbeinendum úr
atvinnulífinu. — Alls spurðu 482 um
hinar ýmsu atvinnugreinar. Á síðasta
starfsfræðsludegi voru þeir 402. Starfs-
fræðsludagurinn var í barnaskóla Ak-
ureyrar.
Setningarathöfn fór fram í hátíðasal
skólans. Eiríkur Sigurðsson, skóla-
stjóri, bauð leiðbeinendur velkomna
og flutti setningarávarp. Sér Pétur Sig-
Ingibjörg Magnúsdóttir yfirhjúkrunarkona raðir um hjúkrun.
Ljósm. H. Ingimarsson.