Heimili og skóli - 01.04.1962, Blaðsíða 25
HEIMILI OG SKÓLI
53
Það ber að fagna því, að nú er bóka-
útgáfan Branner og Korch að senda frá
sér samstæðu af E. P. plötum, þar sem
við heyrum alls 100 fuglaraddir.
stendur þessi útgáfa í sambandi við
mikið verk, sem er að koma út og heit-
ir Fuglar Danmerkur (Danmarks
Fugle). Allt bendir til þess, að þarna
séum við að fá úrvals safn af fugla-
röddum fyrir tiltölulega lág)t verð,
en platan kostar 13.50 (danskar). En
þær eru alls 12.
Það er vert að benda á, að þarna
hafa náttúrufræðikennarar fengið hið
ágætasta kennslutæki.
Það er mjög sennilegt, að þessar
og aðrar hliðstæðar plötur verði í fram-
tíðinni fastur þáttur í allri dýrafræði-
kennslu. Þetta kom fram á UNESCO-
mótinu í Genf, sem fjallaði um skóla-
bækur, þar sem bent var á nauðsyn
þess að gefa út slíkar plötur og skugga-
myndasamstæður til notkunar með
meira og minna þurrum kennslubók-
um til að uppörfa nemendur og vekja
áhuga þeirra og skilning á lestrarefn-
inu..
Og það liggur í augum uppi, að
ekki er hægt að fylgjast með tímanum
í kennsluháttum án þess að taka í þjón-
ustu sína hin nýjustu og beztu kennslu-
tæki, sem völ er á hverju sinni.
Á plötunum er mjög skýr texti, þar
sem skýrt er frá hvaða raddir eru á
hverri plötu. Plötur með dýraröddum
eiga að vera til í hverju skólatækja-
safni. Svend Kaulberg.
Eftirmáli. Er ekki kominn tími til
að fræðslumálastjórnin íslenzka eða
Ríkisútgáfa námsbóka fari að undir-
búa upptöku á öllum íslenzkum fugla-
röddum og gefi þær síðan út á plötum,
sem skólarnir ættu aðgang að?
H. J. M.
Bækur og rit
Heimili og skóla hafa borizt tvær nýjar
bækur frá Ríkisútgáfu námsbóka, og fjalla
báðar um tónlistarkennslu.
Við syngjum og leikum eftir Guðrúnu Páls-
dóttur og Kristján Sigtryggsson, söngkennara
í Reykjavík. Þetta er vinnubók í tónlist, 3.
hefti, og er prentað sem handrit. En Söng-
kennarafélag íslands stendur að útgáfunni.
Það er ætlazt til, að börnin fái þessa bók í
hendur og vinni að ýmsum tónverkefnum
með hjálp bókarinnar. Þarna læra þau t. d.
tónstigann, þagnarmerki, taktskiptingu o. fl.
Þessi vinnubók er 16 blaðsíður að stærð.
Hljóðfall og tónar eftir Jón Ásgeirsson
söngkennara nefnist hin bókin, sem einnig
er vinnubók í tónlist, og stendur Söngkenn-
arafélag íslands einnig að útgáfu hennar.
Þetta mun vera algjör byrjendabók í tón-
fræði. Eins konar „Gagn og gaman“ á sviði
tónlistarinnar.
Báðar þessar bækur þjóna vafalaust vel
þeim tilgangi að vera byrjendabækur á þessu
sviði.
Átthagafreeði, eftir ísak Jónsson, skóla-
stjóra. Ríkisútgáfa námsbóka er nú að verða
allstórvirk og nú síðast sendir hún frá sér
nýja átthagafræði eftir ísak Jónsson skóla-
stjóra. ísak hefur ekki hraðað því úr hófi
að senda frá sér þessa bók, þar sem hann hef-
ur nú kennt átthagafræði nálega í 40 ár.
Honum hefur þó ékki gengið þar til seinlæti,
því að um það verður ísak varla sakaður.
Hitt er sönnu nær, að honum mun liafa þótt
sem seint eða aldrei væri lagður þarna
nógu traustur og fullkominn grundvöllur.
Þessi bók er heilt ævistarf, sem unnið hefur
verið af fágætri samvizkusemi og dugnaði, og