Heimili og skóli - 01.08.1965, Blaðsíða 5

Heimili og skóli - 01.08.1965, Blaðsíða 5
Heimili og skóli timarit um UPPELDISMÁL o ÚTGEFANDI : KENNARAFÉLAG EYJAFJARÐ A R Ritið kemur út í 6 heftum á óri, minnst 24 siður hvert hefti, og kostar órgangurinn kr. 70.00, er greiðist fyrir I. júní. — Utgófustjórn: Indriði Úlfsson, kennari. Edda Eiriksdóttir, kennari. Helgi Þorsteinsson, skólastjóri. Afgreiðsiu- og innheimtumaður: Guðvin Gunnlaugsson, kennari, Voncbyggð 9, Akureyri. Ritstjóri: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Pósthólf 183. Akureyri. Simi 11174. PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR H F. SUMARIÐ og BÖRNIN Enn er það svo, að þrátt 'fyrir alla tækni og vélamennsku, hlakka flest eða öll börn til vorsins og sumarsins. Sú tilhlökkun er þó nokkuð annars eðlis en tilhlökkun barna fyrir nokkrum áratugum. Þá var lífsbaráttan svo hörð, að það fór ekki fram hjá nokkru barni og mótaði þau að veru- legu leyti. Vorið var því lausnartími undan áþján myrkurs, kulda og ör- yggisleysis. Þessi innilegi fögnuður barnanna yfir komu vorsins, var því ósvikinn. Það var hrein og ómenguð gleði. Þá var gaman að vera barn og finna fögnuðinn streyma um sál sína við fyrsta lóukvakið, fyrsta fífilinn í varpanum og fyrstu lömbin, sem fæddust. Sumardagurinn fyrsti var þá allur annar en hann er nú. Það var sannar- leg fagnaðarhátíð, ekki sízt ef fyrstu vormerki voru komin, og jafnvel þótt enn væri vetur, kom hann þó með vonina um betri tíma. Nú, þegar flest landsins börn lifa við rafljós og upphituð hús og þjást auk þess ekki af ótta við harðindi, heyleysi og jafnvel matarskort, er sumardagurinn fyrsti nú ekki lengur nein fagnaðarhátíð. Hann er eins og notalegur sunnudagur, sem að vísu minnir á, að vorið er að koma, en varla meira. Þetta er að sumu leyti eðlilegt og kemur af breyttum tímum, meiri þæg- indum og meira öryggi. Skyldi nokkurt barna nú á dögum biðja til guðs um HEIMILI OG SKÓLI 49

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.