Heimili og skóli - 01.08.1965, Blaðsíða 21

Heimili og skóli - 01.08.1965, Blaðsíða 21
lega eða skriflega. Greindarvísitölur þær, sem fást með því að prófa með þessum prófum, eru bornar saman og gefi þær til kynna, að um treggáfað barn sé að ræða, er það með samþykki foreldranna sett í svonefndan hjálparbekk eða hjálparskóla. Kennarar, sem kenna í þeim bekkjum, hafa allir hlotið aukamenntun í kennslu van- gefinna barna, sjá sálfræðingarnir um að skipuleggja þá fræðslu, sem þeim er veitt. I þessum bekkjum er námsefni annað en í venjulegum bekkjum, aðaláherzlan lögð á lestur, skrift, reikn,ing, teiknun, söng, leikfimi og verklegt nám, en litils krafizt í bóklegum námsgreinum, enda ráða börn- in með áðurnefnda greindarvísitölu lítið við þær. Ekki dugir að ætla börnum rneð svo lága greindarvísitölu flókin viðfangs- efni, því bæði reynsla og rannsóknir hafa sýnt, að sá sem ekki ræður við bóklegt nám, getur heldur ekki lært nema einföld verkleg störf. Þegar þessi börn eru komin um fermingaraldur er þeim veitt mjög ítarleg starfsfræðsla og loks eru þau að- stoðuð við starfsval. í hjálparbekkjum eru aldrei meira en 15 nemendur en stundum færr.i, kennslan er mjög einstaklingsbund- in og kennararnir, sem kenna í bekkjun- um, fá hverjar fjórar kennslustundir reikn- aðar sem fimm. Þá er starfsemi lestrarbekkjanna, en þeir eru nú orðnir á þriðja hundruð í Kaupmannahöfn. (Ósannað er, hvort sama þörf sé fyrir lesbekk á íslandi og í Dan- mörku). Alloft ber á því, að barn, sem annars hefur eðlilega greind eða meira, á mjög erfitt með að læra að lesa. Verði kennari var v.ið, að barni fari óeðlilega seint frm í lestri, biður hann fyrir milli- göngu skólastjóra, sálfræðing um að rann- saka barnið. Við slíka rannsókn er beitt fyrnefndum greindarprófum, en auk þess sérstökum lestrarprófum, sem leiða í ljós hin algengustu einkenni lestrarörðugleika. Sé um áberandi lestrarörðugleika að ræða, er barnið sett í lestrarbekk, þar sem það nýtur sérkennslu í lestri auk kennslu í öðrum námsgreinum. Skólasálfræðingur- inn fylgist í samráði við kennarann með framförum þess. í lestrarbekk eru aldrei sett nema 15 börn og stundum færri. Kennsla er greidd eftir sömu reglum og í hjálparskólabekkjum. Oft kemur í ljós, að lestrarörðugleikar barnsins eiga rætur sínar að rekja til heim.ilisvandræða, er ekki hvað minnst starf fyrir skólasálfræð- ingana að ræða við vandræðaforeldra. Er í því sambandi rétt að geta þess, að allir sálfræðingar, sem eru meðlimir danska sálfræðingafélagsins, hafa algerða þagnar- skyldu, nema því aðeins að þeir komizt að fyrirætlunum, sem verið geta lífi og limum annarra hættulegar, þá ber þeim vitanlega skylda til að gera réttum hlut- aðeigandi aðvart. Vilji einhverjir kynna sér lestrarnám og lestrarörðugleika nánar, get ég bent þeim á grein, sem ég skrifaði í tvö síðustu hefti Heimili og skóla um þetta efni. Hvað börn með vafasama hegðun snert- ir, er farið sömu leiðir og áður er lýst, en venjulega eru ekki nema 7—10 í slík- um bekkjum og er meira en nóg, ef árang- ur á að fást af starfinu. Kennarar, sem fá slíka bekki til meðferðar, eru skyldir til að heimsækja foreldrana með vissu milli- bili, eru þau ferðalög ekki alltaf jafn á- nægjuleg, a. m. k. ekki í fyrstu skiptin, sem þeir berja að dyrum hjá fólkinu, því að öllum jafnaði þarf það ekki síður á geðvernd að halda en börnin. I sambandi við störf skólasálfræðing- anna hafa kennsluaðferðir og námsbækur verið rannsakaðar. Athyglin hefur meðal HEIMILI OG SKÓLI 65

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.