Heimili og skóli - 01.08.1965, Blaðsíða 44
Brekut oq rit
Skólaljóð. Kristján Gunnarsson tók sam-
an. — Þetta eru hin vönduðustu og glæsi-
legustu skólaljóð, sem íslenzk börn hafa
nokkurn tíma fengið í hendur. Þetta er
allstór bók, eða 252 blaðsíður. Þarna eru
tekin Ijóð eftir 43 skáld, allt frá Hall-
grími Péturssyni til Steins Steinarr, og
allmörg kvæði eftir hvern höfund. Ljóð
þessi eru ætluð 10, 11 og 12 ára börnum,
svo og 13 og 14 ára börnum, eða út allt
skyldustigið. Þó að fjöldi kvæða séu ætluð
hverjum aldursflokki, er ekki ætlast til
að þau læri þau öll.
Skólaljóðum þessum fylgir allstórt kver
þar sem gerð er nokkur grein fyrir ljóð-
um hvers skálds, hvað út hefur komið eft-
ir þau, ennfremur verkefni til vinnubóka-
gerðar og loks orðaskýringar. Þá er og
bent þarna á greinar, sem skrifaðar hafa
verið um höfundinn. Það er mikill fengur
að þessu hefti, ekki sízt, ef gera á bók-
menntalega ritgerð um skáldið, en til þess
ætlast höfundur. Þarna er því fenginn
grundvöllur að bókmenntalegu vinnubóka-
starfi í skólunum. Loksins fengum við
þó góð Skólaljóð, sem hvert barn mun hafa
ánægju af að fá handa á milli.
Loks ber að geta þess, að bókin er mjög
myndskreytt, ein eða fleiri myndir á hverri
blaðsíðu. Myndirnar eru gerðar af Hall-
dóri Péturssyni listamanni. Hvert skáld
er tekið út af fyrir sig og hefst hver kafli
á stuttri ævisögu skáldsins. Eg óska ekki
aðeins skólunum til hamingju með þessa
bók. Ég sé ekki betur en þau eigi heima
í hverju heimilisbókasafni, svo og skýr-
ingaheftið. H. J. M.
SVARTUR BLETTUR
I gamla daga var okkur bömunum sagt,
að það kæmi svartur blettur á tungu okk-
ar, ef við skrökvuðum. Þetta má til sanns
vegar færa. En hann kemur líka á tung-
una ef blótsyrði eru við höfð. Enginn
sannmenntaður maður blótar. Það er eitt-
hvað að sálarlífi þeirra manna, sem eru
síblótandi. Fyrir utan það, hve heimsku-
legt það er, er það óprýði á öllum, það
er skortur á siðfágun, en siðfágun er á-
vöxtur innri þroska. En svo ljótt, sem það
er að heyra fullorðið fólk blóta, þá er
það þó enn óhugnanlegra að heyra böm
taka sér þessi orð í munn, kannski varla
búin að læra að tala. En ef barnið heyrir
aldrei blótsyrði á heimilinu, fullyrði ég
að það verður ekki blótsamt, þegar það
vex. Það heyrir að vísu blótsyrði á göt-
um á almannafæri, og nota þau eitthvað,
en það stendur ekki djúpt, og hverfur, þeg-
ar barnið stækkar metr. Blótsyrði eru eins
konar óþrif á mönnum, sem þarf að lækna
eins og kláða og aðra slíka leiðindakvilla.
Ráðið er einfalt: Blótið aldrei heima hjá
ykkur, þar sem börn eru að alast upp.
❖
DOTTUR .minni og unnusta hennar varð
eitthvað sundurorða einu sinni, og þau
ásökuðu hvort annað fyrir að kunna ekki
að fara með fjátmuni. „Líttu nú á mig,“
sagði hann. , A meðan ég stunda skóla-
nám, safna ég líka peningum. Ég á tíu þús-
und kiónur í banka, en hvað kemur þú til
með að eiga, má ég spyija?“
Hún brosti yndislega og sagði: „Ég kem
til að eiga bæði þig og tíu þúsund krón-
urnar.“
88 HEIMILI OG SKÓLI