Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 17

Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 17
FIMMTUGUR: Þann 21. júlí sl. varð Björgvin Jörgens- son, kennari við Barnaskóla Akureyrar, fimmtugur. Hann er fæddur að Merkigerði á Akranesi 21. júlí árið 1915. Foreldrar hans voru hjónin Jörgen Hanson, vélstjóri, og Sigurbjörg Halldórsdóttir. Hann var í unglingaskóla á Akranesi veturna 1928— 1930, iðnskóla Hafnarfjarðar veturinn 1930—1931, jafnframt námi í rafvirkjun. Kennaraprófi frá Kennaraskólanum lauk hann 1936. Þá nam hann fiðluleik í Tón- listarskóla Akureyrar 1947—1949. Hann var stundakennari við Miðbæjarbarnaskól- ann í Reykjavík veturna 1936—1938. Þá stundaði hann nám við söngkennaradeild Kennaraskólans veturna 1937—1938. Kenn- ari við Barnaskóla Borgarness og stunda- kennari við unglingaskólann þar var hann veturna 1938—1946. Þá varð hann kenn- ari við Barnaskóla Akureyrar 1946 og hefur verið það síðan. í Borgarnesi hafði hann sunnudagaskóla á vegum K.F.U.M. og annað kristilegt starf meðal drengja. Á meðan hann var i Borg- arnesi stofnaði hann Barnakór Borgarness, sem vakti mikla athygli á sínum tíma. Þeg- ar til Akureyrar kom, stofnaði hann Barna- kór Akureyrar og fór með hann í söngför til Noregs árið 1954. Hann var skólastjóri við Vinnuskóla Akureyrar nokkur ár. Hann stofnaði K.F.U.M. á Akureyri 1951 og hef- ur verið formaður þess síðan. Þann 22. ágúst 1945 gekk hann að eiga Bryndísi Böðvarsdóttur frá Hrafnseyri. Þau eignuðust þrjú börn, Ingibjörgu, Böðvar og Margréti. Árið 1958 varð hann fyrir slysi í Sementsverksmiðjunni á Akra- nesi, sem dró hann nálega til dauða. Hann lamaðist vinstra megin og var fluttur i sjúkrahús í Kaupmannahöfn. Þar fékk hann nokkurn bata, en með frábæru viljaþreki og karlmennsku hefur honum tekist að ná fyrri heilsu að mestu leyti og taka við starfi sínu aftur. Hann varð þó að hætta söngkennslu við skólann vegna þess að hann gat nú ekki lengur leikið á hljóð- færi. Það var mikið áfall útaf fyrir sig. Fyrir áramótin í vetur varð hann svo fyrir þeirri þungu sorg að missa konu sína, en hún hafð.i verið hans stoð og stytta, ekki aðeins við að skapa fagurt heimili og ala upp myndarleg og mannvænleg börn, heldur höfðu þau hjón verið sam- hent í hinu kristilega starfi, sem þau unnu bæði af alhug. En Björgvin tók einnig þessu þunga áfalli með fágætu æðruleysi og stillingu. Kannski meðal annars vegna þess, að hann trúir því, að allt sé í hendi HEIMILI OG SKÓLI 61

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.