Heimili og skóli - 01.08.1965, Blaðsíða 25
Sunnudaginn 20. júní sl. vígði séra
Bjarni Jónsson, vígslubiskup, sumarbúð.ir
K.F.U.M. og K.F.U.K. á Akureyri að Hóla-
vatni í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. Skál-
inn stendur á fögrum stað norðan við Hóla-
vatn, en háir hólar veita skjól fyrir vestan-
og norðanátt.
Skálinn er 120 fermetrar að stærð. í
kjallara eru tveir svefnsalir fyrir 24 dval-
argesti, en auk þess lítið for.ingjaherbergi.
Þar eru einnig snyrtiklefar, steypibað og
geymsla.
Á efri hæðinni er matar- og samkomu-
salur, sem rúmar um 100 manns í sæti,
en hann er ætlaður um 30 manns að stað-
aldri.
Á hæðinni er auk þess eldhús og her-
bergi starfsstúlkna, en stór verönd er fram-
an við skálann. Skálanum fylgir 5 ha. land
í hólunum, en þar er allgóð laut fyrir fót-
bolta og aðrar íþróttir.
Skálinn hefur verið um 6 sumur í smíð-
um, enda hefur hann nær eingöngu verið
reistur í sjálfboðavinnu af ungu fólki,
piltum og stúlkum, flestum innan við tvi-
tugt. Er skálinn vandaður og smekklega
frágenginn.
Skálinn er búinn að kosta félögin um
600.000.00 kr. og er þá sjálfboðavinna ekki
með talin, en fastaskuldir eru um 225.000.
00.
Sumarstarf hófst í þessum skála 2. júlí
og voru það fyrstu vikuna drengir á aldr-
inum 9—12 ára, en næstu viku drengir á
aldrinum 12—14 ára.
Frá 16. júlí var svo starf fyrir stúlkur
næsta hálfa mánuðinn og var aldursskipt-
ing hin sama. I ágústmánuði var sama íil-
högun, drengir fyrri hluta mánaðarins, en
stúlkur síðari hluta. Daggjald er kr. 100.00
auk ferðakostnaðar. Allar nánari upplýs-
ingar um starf.ið eru gefnar í síma 12867.
Vígsluhátíðin hófst með því að formað-
ur K.F.U.M., Björgvin Jörgenson, kenn-
ari, bauð alla velkomna og kynnti dagskrá.
Sigríður Zakaríasdóttir byrjaði svo há-
tíðarsamkomuna með orði úr 127. Davíðs-
sálmi: „Ef Drottinn byggir ekki húsið,
erfiða smiðirnir t.il ónýtis,“ og flutti síðan
bæn.
HEIMILI OG SKÓLI 69