Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 7

Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 7
Bæði er það, að atvinnuhættir sveitanna hafa breytzt, svo að nú er minni þörf fyrir vinnukraft harnanna. Vélarnar hafa nú tekið við ýmsu því, sem börnin gátu áður gert, hitt ræður þó líklega meiru, að vegna fámennis flestra ■sveitaheimila, er húsmóðirin svo störfum hlaðin dag hvern, að hún getur ekki bætt á sig þjónustu kaupstaðarbarna. Þróunin hefur því verið sú, að ég hygg, að æ færri kaupstaðabörn hafa getað fengið sumardvöl í sveit. Enn munu þó talsvert mörg heimili taka kaupstaðabörn, oft þó sakir frændsemi og vináttu, og enn um skeið mun einhver, tiltölulega fámennur hópur kaup- staðabarna, komast í sveit til skemmri eða lengri dvalar, en þau verða færri með hverju ári, sem líður, en hin börnin aftur fleiri og fleiri, sem verða að sætta sig við dvölina heima í bæjunum í göturyki og hávaða. Nú þykir mér líklegt, að þróunin í skólamálunum verði sú, í næstu fram- tíð, að árlegur skólatími barnanna lengist þannig, að öll börnin verði 9 mán- uði í skóla eins og 7, 8 og 9 ára börnin eru nú. Kemur þar tvennt til: Færri og færri börn fá nú vist í sveit og mun sú þróun enn halda áfram. Það er því tvímælalaust betra, að börnin sæki skóla sinn en að vera iðjulaus og eftirlitslaus á götunum. Þau lifa þar reglubundnu lífi, eru undir eftirliti og aga og hafa hæfileg viðfangsefni, sem gefur lífi þeirra tilgang. Um vinnu í kaupstöðunum er tæplega að ræða, nema nokkrar telpur, sem gæta barna. Hitt er þó sterkara á metunum, þegar rætt er um lengingu árlegs skólatíma, og það er, að íslenzk börn eru yfirleitt ver að sér en jafnaldrar þeiira í nágrannalöndunum, og á það við um flestar náms- greinar. Við, sem erum að sogast inn í hið tækniþróaða þjóðfélag, hljótum þar að gera kröfur til menntunar, sem er ekki lakari en hjá grannþjóðum okkar. En það er engin sanngirni að gera þær kröfur, nema börnin fái hlið- stæða menntun. Það er hrein og bein óskhyggja, að telja okkar börn gáfaðri og næmari en börn grannþjóðanna. Skólatími hjá okktir er styttri en í nokkru öðru menningarlandi. Þar er árlegur skólatími 10—-lO^/b ntánuður, en sumarleyfi aðeins 6 vikur. Hér hjá okkur minnst 3 mánuðir og hjá sumúm aldursflokkum fjórir og hálfur mán. Það má því ljóst vera, að börnin okk- ar íæra ekki á sínum stutta námstíma nærri því eins mikið og börn í ná- grannalöndunum, þar sem daglegur námstími er einnig mun lengri. Islend- ingar hafa verið hreyknir af sínu langa sumarleyfi. Það er nú ekki ástæða til þess lengur, þegar það verður á kostnað skólamenntunarinnar. Það er heldur ekki hægt lengur að verja það með því, að börnin fari í sveit og sé það ólíkt hollara fyrir þau. Það er að vísu dásamlegur hlutur að mega ala HEIMILI OG SKÓLI 51

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.