Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 10
fjárhagsáætlun í stórum dráttum, en ganga þó aldrei of nærri sjálfstæði
þeirra og vilja. Foreldrarnir geta til dæmis látið unglingana greiða fæði sitt
og jafnvel húsaleigu. Það fer þá ekki í súginn. Það má gera tillögur um
kaup á munum í herbergi þeirra, skrifborð, bókaskáp, útvarpstæki, segul-
band, kíki o. m. fl. Þessar skynsamlegu tillögur ættu að ræðast á heimilinu
í fullri alvöru, en ekki mæli ég með því, að foreldrarnir taki peninga ungl-
inganna þegjandi til heimilisþarfa. Það kallar ekki á ábyrgðartilfinningu
unglinganna. Enn er eitt ótalið, þegar verið er að ráðstafa peningum sum-
arsins, og það er eitt hið sjálfsagðasta, en það er að leggja þá í banka, þar
til á þeim þarf að halda. Þetta gera sjálfsagt margir, en þó alltof fáir. Þeir
eru alltof margir, sem sóa fé sínu í alls konar óþarfa og oft hættulegan, svo
sem áfengi og tóbak.
Yfirleitt ættu foreldrarnir að ræða sem fyrst við börn sín um meðferð
peninga. Jafnvel vasapeninga, skynsamleg ráðstöfun þeirra er undirstaða
annarra og meiri peningamála.
-----o—o------
Sumarið er að þessu sinni á förum. Við skulum vona, að það hafi orðið
mörgum börnum drjúgur þroskagjafi. Við skulum einnig vona, að foreldrar
hafi snúizt skynsamlega við peningamálunum að loknu sumri. Við skulum
að lokum vona, að börnin, sem ekki komust í sveit, en urðu að búa við ryk-
ugar götur, hafi að einhverju leyti notið þeirrar blessunar, sem íslenzkt
sumar ber jafnan í skauti sínu. H. J. M.
54 HEIMILI OG SKOLI