Heimili og skóli - 01.08.1965, Síða 34

Heimili og skóli - 01.08.1965, Síða 34
ingargildis útvarpsefnisins. Og nú virðist enginn friður vera neinsstaðar. Ungling- arnir eru farnir að ganga með útvarps- tæki um hálsinn úti á götu. Verkamenn eru farnir að hafa það á vinnustað, jafnvel við útivinnu. Jafnvel í verksmiðjum, þar sem vélahávaði er ærið nógur, er útvarp- inu komið fyr.ir og þá venjulega stillt svo hátt, að hávaðinn sker í eyrun. Og svo erum við að tala um ókyrrð og tauga- veikluð börn. Hvernig ættu þau að vera annað en börn sinnar samtíðar. Skólunum fylgir alltaf nokkur hávaði. í Barnaskóla Akureyrar hefur það verið siður að minnsta kosti síðan 1930, og vafalaust í fleiri skólum, að börnin eru látin skipa sér í raðir á leikvellinum fram- an við anddyri skólans, hver deild út af fyrir sig. Þetta tekur óneitanlega ofurlít- inn tíma, það dregur frá kennslustundinni, ■en reynsla okkar í meira en 30 ár hefur sannfært okkur um, að þetta borgar sig. Börnin eru ekki látin ganga inn fyrr en sæmileg kyrrð er komin á raðirnar, og þegar þar við bætist svo, að þau eru látin skipa sér í raðir fyrir framan stofudyr sínar, þegar inn er komið, er komin sæmi- leg kyrrð yfir þau, þegar þau eiga að fara að vinna. Með þessu móti skilja þau hávaðann af leikvellinum að mestu eftir úti. Það hefur oft komið á dagskrá á kennarafundum, að leggja þessa röðun niður, en raunin hefur orðið sú, að það hefur aldrei orðið af því. Ég held, að þessi háttur hafi stuðlað að því, að gera allt yfirborð skólans lygnara en ella, og er þá mikið fengið. Þjóðfélagið á mikiö undir þvi komið að -eiga góða skóla, og aldrei meira en nú. Auðvitað er heimilið alltaf sú stofnun, sem mest verður að treysta á, en fyrir rás við- burðanna, hafa heimilin smátt og smátt misst sína sérstöðu, eftir að meiri hluti þjóðarinnar tók sér bólfestu í þéttbýlinu. Og enn í dag er hlutverk þeirra hið sama, að leggja góðan og traustan grundvöll að þjóðaruppeldinu. Það er ómetanleg ham- ingja að fá að alast upp á heimili, þar sem friður og regla ríkja, þar sem foreldrarnir telja það hina helgustu skyldu sína, að veita börnum sínum svo gott uppeldi, sem frekast er unnt. Ahrif slíkra heimila end- ast ævilangt, svo mikið er þeirra pund. Um góðan skóla má segja eitthvað svip- að, en þar má fræðslan ein ekki sitja að völdum. Skólarnir hljóta að telja það skyldu sína, að bæta einhverju við það uppeldi, sem börnin höfðu fengið í heim- ilunum. Alveg sérstaklega vil ég leggja áherzlu á að uppeldi skólanna verður að vera kristilegt, og þá engu síður í fram- haldsskólunum. Nútíma nemendur í skól- um þurfa umfram allt sterk kristin og siðræn áhrif. Það gefur kjölfestu í hinum ókyrra sjó, sem bíður þeirra utan skóla- veggjanna og utan bernskuheimilis síns. Kristin og siðræn áhrif eru líklegri til þess en flest annað að byggja upp geð- rænt jafnvægi barna og unglinga, en það er grundvallarskilyröi fyrir hamingjusömu lífi. H. J. M. FRÆGUR kvikmyndaleikari í Hollywood sagði við son sinn 8 ára er þeir sátu við morgunverðarborðið: „Mér þykir það leitt, drengur minn, að snemma í fyrramálið þarf ég sjálfur að nota bílinn og bílstjórann.“ „Já, en pabbi?“ sagði sonurinn. „Hvern- ig á ég þá að komast í skólann?" „Þú kemst líklega í skólann eins og hin börnin,“ sagði faðirinn reiðilega. „Þú tekur auðvitað leigubíl.“ 78 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.