Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 36

Heimili og skóli - 01.08.1965, Page 36
yrðu hér í þrjá mánuði meðan þau voru að jafna sig, en stríðið hélt áfram og það varð lokuð leið milli landanna. Rauða krossbréf, allt að tuttugu orðum, var allt sambandið, sem var milli okkar og hinna ógæfusömu foreldra barnanna. Þau höfðu sent okkur börnin sín og þráðu að frétta af þeim. Við skrifuðum auðvitað til móður Ann- eli, svo að hún vissi að stúlkan hennar væri hjá góðu fólki og liði vel. Svo leið hálft annað ár, og á þeim tíma varð Anneli okkur mjög hjartfólgin. Við vissum alltaf, að hún átti að fara frá okkur aftur, og allan tímann höfðum við sagt við okkur sjálf: Láttu þér ekki þykja alltof vænt um hana, mundu, að þú átt hana ekki. En við vonuðum, að burtför hennar drægist að m.innsta kosti þar til hún yrði dálítið stærri. Nú var hún aðeins fjögra ára. Hún hvorki skildi né vildi skilja það, sem við sögðum henni, að í fjarlægu landi, er héti Finnland væri mamma hennar og pabhi og biðu eftir henni ... Okkur hafði verið skrifað, að nú væri faðir hennar kominn úr stríðinu. í hvert skipti, sem við sögðum henni þetta sagði hún: — Nei, þú ert mamma mín, og þú ert pabbi minn. Ég vil ekki neina aðra mömmu eða pabba. Við gáfumst upp, því að hún varð hrædd, þegar við minntuníst á þetta við hana. Svo rann upp þessi voðalegi dagur, þeg- ar skipun kom frá finnska ríkinu um, að nú ættu börnin að fara heim. Margir for- eldrarnir og einnig fósturforeldrarnir vildu fresta þessu lengur, en ríkið heimt- aði að börnin færu heim. Ef til vill hefur það verið rétt, að því fastara sem finnsku börnin festu rót í Danmörku, því erfiðari urðu umskiptin. Við hjónin vorum alveg miður okkar. Það var nokkuð annað að senda eldri börn- in heim. Anneli var of lítil til að hægt væri að skýra fyrir henni, að nú ætti hún að fara heim til sinnar réttu móður. Það skar mig í hjartað, að hún reyndi að fela sig, svo að hún þyrfti ekki að fara. Á þann hátt hélt hún, að hún gæti komizt hjá því. Við saumuðum föt handa henni, og röðuðum þeim í tösku, svo við vorum ör- ugg um, að hana mundi ekki vanta föt fyrst um sinn. Svo sendum við gjafir til ættingja hennar. Aftur stóðum við svo á járnbrautarstöðinni og Anneli veifaði okk- ur úr lestarglugganum, en ein konan, sem fylgdi börnunum lyfti henni upp. Hún grét ekki, og það þótti okkur undarlegt. Það liðu aðeins sex mánuðir, þar til hún var komin aftur. Það kom bréf frá Rauða krossinum finnska, að hún hefði ekki getað samlagast heimilinu og ekki skilið foreldra sína og systkini. Þegar hún kom aftur hafði hún lagt af og var slöpp á taugum. Hún vildi ekki sofa, nema hún fengi að sofa milli okkar hjónanna, og við áttum að gæta þess, að enginn kæmi og „tæki“ hana. Svo að við urðum að hafa hana á milil okkar og þá féll allt í ljúfa löð. — Við höfum eignast dóttur, sögðum við hvort við annað. — Það er ekki til neins að strita á móti, Anneli er orðin stúlkan okkar. Mánuðirnir liðu og hún dafnaði aftur vel. En árið eftir eignuðumst við sjálf lít- inn dreng, og þremur árum síðar kom lítil stúlka, og Anneli þótti eins vænt um þau og þau væru hennar eigin systkin. Anneli byrjaði í skólanum og það gekk prýðilega. Hún eignaðist góða félaga og fann ekki annað en hún væri dönsk. En þessu hálfa ári í Finnlandi gleymdi hún þó aldrei. Stundum varð hún „lítil“ og 80 HEIMILI OG SKOLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.