Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 43

Heimili og skóli - 01.08.1965, Side 43
HÉR kemur svo nýjasta fyndin um Járn- tjaldið: Ungur tónlistamaður ferðaðist með lest- inni frá Varsjá til Moskvu og var á leið- inni að blaða í nótnabók. Einn samferða- maður hans, sem var í rússnesku leyni- þjónustunni, reyndi að lesa það, sem hann sá af nótnaletrinu, en árangurslaust, og þegar það tókst ekki, tók hann tónlista- manninn fastan, ákærðan fyrir njósnir. Nótnaskriftin var leyniletur, fullyrti hann. „Já, en þetta er aðeins fuga eftir Bach,“ sagði ungi maðurinn, þegar lögreglan tos- aði honum út. Daginn eftir Var hann færður til lögreglu- stjórans, en hann hélt stöðugt áfram að endurtaka að hann væri saklaus. „Þetta er tilgangslaust, félagi," sagði lögreglustjórinn. „Það er bezt fyrir þig að opna munninn og segja sannleikann. Bach hefur þegar meðgengið.“ * JOHN WEEKS, dómari í Minneapolis, komst í illt skap þegar hann sá mann einn sitja í réttarsalnum með hatt á höfðinu. Honum þótti sem það væri móðgun við réttinn og skipaði manninum að ganga út úr salnum. Næst var kallað á George Rodge, sem var ákærður fyrir þjófnað, en hafði verið látinn laus gegn tryggingu. En enginn Rodge gaf sig fram. „Herra dómari,“ sagði ákærandinn. „Þetta er maðurinn, sem þér voruð áðan að reka út.“ Nú leitar lögreglan árangurslaust eftir Rodge. * AMERÍSKUR kaupsýslumaður, að nafni Harry Stuart átti að mæta fyrir þingnefnd vegna eitthvað athugaverðra viðskipta með gjaldeyri. Faðir hans var mjög áhyggjufullur út af þessum afskiptum hins opinbera. Og kvöldið áður heyrði Stuart föður sinn biðja himnesk máttarvöld um að varðveita soninn fyrir öllum óþæg- indum út af þessari stefnu, svo og öllum misskilningi. „Góði guð,“ bað gamli mað- urinn í kvöldbæn sinni, „haltu verndar- hendi þinni yfir syni mínum, Harry Stu- art, forstjóra fyrir Halsey Stuart & Co., sem er ákærður af þingnefnd fyrir gjald- eyrissvik og á að mæta á morgun í Wash- ington, sem sé í aðalbyggingu Bandaríkja- þings, í lierbergi nr. 304.“ * SÓKNARNEFNDARMÖNNUNUM hafði verið falið að ganga um í sókninni og leita eftir samskotum til að kaupa nýja altaristöflu. Ung kona, sem hafði verið valin í fjársöfnunarnefndina, kveið mjög fyrir þessu hlutverki. Presturinn reyndi að telja í hana kjark með því að ráðleggja henni að leita styrks í bæninni. „Það styrkir yður að flytja stutta bæn áður en þér leggið af stað út á meðal fólksins," sagði hann. A næsta fundi í sóknarnefndinni kom þessi kjarklitla kona prestsins og þakk- aði honum fyrir góðar ráðleggingar. „Eg fylgdi ráðum yðar, og þetta kom alltaf að notum hverju sinni ,sem ég knúði á dyr fólksins.“ „Það gleður mig að heyra þetta,“ sagði presturinn með ljómandi brosi. „Segið mér nánar frá þessu." „Já, áður en ég lagði af stað til að finna einhverja, sem líklegir væru til að gefa, sendi ég guði bæn um, að láta þá ekki vera heima.“ * MANNINUM mínum er ákaflega illa við að hjálpa til við uppþvottinn, og ég er í sex ára hjónabandi farin að sætta mig við þetta. Svo kom „dagur móðurinnar". Þá kom hann fram með athyglisverða tillögu, sem mér þótti ástæða til að taka vel. „Það er dagurinn þinn í dag, svo að mér finnst sjálfsagt, að þú látir uppþvottinn bíða þangað til á morgun.“ HEIMILI OG SKÓLI 87

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.