Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 11
ANNA SNORRADÓTTIR:
-7
BÖRN OG
BÆKUR
Þcgar höfundur hafði flutt þetta er-
indi í Utvarp i þættinum „Við sem heima
sitjum", fór ég þess ó leit við hann, að
mega birta erindið i Heimili og skóla.
Varð hún við þeirri beiðni minni og kann
ég henni þakkir fyrir. — Ritstj.
Það hefir verið sagt af einhverjum vís-
um manni, að bezta gjöfin, sem við getum
gefið börnum okkar, sé gleðin, sem þau
öðlist við lestur góðra bóka. Það sé gjöf,
sem endist til æviloka. Ef þetta er rétt, eru
barnabækur, efni þeirra og frágangur all-
ur, miklu meiri og markverðari þáttur í dag-
legu lífi, heldur en margir gera sér grein
fyrir í fljótu bragði.
Mér barst nýlega í hendur eintak af
danska blaðinu Berlingske Tidende, þar
sem sagt er frá þriðju „Barnabóka-vik-
unni“, semi haldin var í okt. sl. Tvívegis
áður hafa slíkar vikur verið haldnar í Dan-
mörku. Mér er ekki kunnugt um, hvort
þessi starfsemi er almennt þekkt hér á landi
og, hvort menn vita, hvað í raun réttri er
hér á ferðinni. Þess vegna langar mig til
að gera í stuttu máli að umtalsefni þetta
merkilega starf, sem nágrannaþjóðir okkar
vinna á sviði barnabóka---------lestrarefni
barna, sem almennt er talið af sérfróðum
mönnum að sé miikilvægara en flest annað
í uppeldi þeirra.
Það eru uppeldissérfræðingar, bókaút-
gefendur, bóksalar og bókaverðir, sem allir
'hafa lagzt á eitt við undirbúning og fram-
kvæmd þessarar umræddu „Bamabóka-
viku“, og er það, eins og áður sagði í
þriðja sinn, sem slíkar vikur eru haldnar í
Danmörku, og að þessu sinni var vikan
opnuð með hátíðlegri adhöfn í Ráðhúsi
Kaupmannahafnar. Aðaluppistaða vikunn-
ar eru sýningar á úrvais barnabókum, fyrir-
lestrar um barnabækur og val á lestrarefni
fyrir hin ýmsu aldursskeið. Þá eru og
HEIMILl OG SKÓLI 55