Heimili og skóli - 01.08.1968, Page 12
Lestrarstofa í stórum
barnaskóla.
fengnir beztu menn og konur til upplestra
á köflum úr völdum bókum og til að benda
á og kynna það bezta, sem völ er á. Astrid
Lindgren, sem er mjög vinsæll barnabóka-
höfundur, las upp þessa viku, ekki aðeins í
höfuðborginni sjálfri, heldur fór hún víða
um land o« las og ræddi lesefni barna. Það
er reynt að ná til sem flestra, einnig úti á
landsbyggðinni, því að ekki eru böm og
bækur sérfyrirbæri höfuðborga — þau eru
alls staðar.
Aðilar þeir, sem standa að þessu starfi
og áður gat um, hafa lagt geysimikla vinnu
og kostnað í það, að koma vikunni á lagg-
irnar, en ekki leita þeir til barnanna sj álfra,
þótt þau að sjálfsögðu sæiki bókasýning-
amar og upplestrana og annað er á boð-
stólnum er, heldur beina þeir starfi sínu
og áróðri — eða ættum við frekar að segja
ábendingum — til foreldranna og annarra
forráðamanna barnanna, sem ábyrgir eru
fyrir því, hvð bör lesa, einkum á unga aldri.
56 HEIMILI OG SKÓLI
í þessu skyni eru gefnar út bókaskrár yfir
g'óðar barnabækur, en af þeim er mikið
hjá grannþjóð okkar, Dönum, þótt mis-
jafnt finnist innan um, eins og alls staðar.
Vikuna, esm bókasýningarnar stóðu yfir,
var bókaskrám þessum dreift í 3 þúsund
barnaskóla og þúsund leikskóla í landinu,
en efni bókanna raðað fyrir þessi tvö ald-
ursskeið, leilkskóla-aldurinn og barnaskóla-
aldurinn.
I þessum skrám er einungis að finna
bækur, sem hinir sérfróðu menn í þessum
málum telja góðan og hollan lestur, vel
skrifað lesefni og vandað, og má segja
með réttu, að hér sé um sérlega góða leið-
beiningu fyrir heimili og skóla. I grein,
sem einn af framlámönnum þessara mála
ritaði um „Barnabóka-vikuna“, segir á ein-
um stað:
„Þegar maður sér allt þetta umstang og
alla þessa fyrirhöfn, verður manni á að