Heimili og skóli - 01.08.1968, Side 13

Heimili og skóli - 01.08.1968, Side 13
spyrja: Er þetta nauðsynlegt? Er nauð- synlegt að gera svona mikið veður út af jafn einföldum hlut og barnabókum?“ Og hann svarar spumingunni afdráttarlaust játandi. Margir munu einnig spyrja á svip- aðan hátt. Er þetta nauðsynlegt? Sann- leikurinn er hins vegar sá, að það er ekki alltaf auðvelt að ná eyrum fólks — það þarf oft að hrópa hátt, og það hefir ekki alltaf reynzt létt að ná til foreldranna — fá foreldrana til þess að skipta sér nokkuð af því, hvað börnin lesa né sýna málinu í heild neinn sérstakan áhuga. Fólk er gjarnt á að segja sem svo: Þegar ég var ungur, var ek-kert verið að hugsa um það, hvað maður las, og þetta blessaðist allt. En það hafa orðið miklar breytingar á þjóðfélögum okkar síðustu áratugina. Það var ekki mikið úrval af bókum, sem börn og unglingar bjuggu við hér á árum áður og barnabókáflóð, sem nú tíðkast fyrir jólin, þekktist ekki. Það var ekki nærri því eins mikill vandi að velja og hafna og kaupsýsla í sambandi við bamabækur var af skornum skammti — einnig getan til að kaupa bækur. Börn lásu þá miklu meira áf fullorðins-bókum — bókum, sem skrifaðar voru fyrir fulltíða og þroskað fólk en ekki fyrir börn. Þetta hafði sína kosti en einnig galla. Það þroskaði oft og einatt, en les- efni fyrir yngstu kynslóðina var það í raun réttri ekki. Ýmsir hafa viljað halda því fram, að með tilkomu kvikmynda, sjón- varps, myndahefta og alls kyns skemmtana, sem á boðstólnum eru í dag, ættu barna- bækurnar ekki lengur upp á pallborðið hjá yngstu kynslóðinni og, að þær myndu jafn vel hverfa að mestu úr sögunni. En staðreyndin er á allt annan veg. Barna- bækur seljast betur nú en nokkru sinni fyrr og börn lesa meir en áður. Það er því ekki sama, hvernig þetta verk er unnið, hvernig barnabækur eru bæði að efni til og frágangi. Forstöðumenn „Bamaböka-vikunnar“ dönsku ráðast mjög, á myndaheftin, þar sem lítið er lesmálið og oft lélegt, en hægt er að ná sér í spennandi sögu með því að renna augunum yfir blaðsíðurnar. Þeir telja, að erfitt muni fyrir börn, sem venjast um of á slíkan lestur að snúa yfir á þá braut að lesa heilar bækur, lesa vel og njóta efnisins. Þeir benda lí-ka á hættuna af því, að láta böm lesa um of hinar svo- nefndu seríu-bækur og telja slíkar bækur sjaldnast góðar. Venjulega fari gæðin þverrandi með tilkomu hverrar nýrrar bók- ar og oft sé þetta einungis gert í fjárhags- skyni — útgefendur telji, að framhald bókar, sem selzt hafi vtíl, muni líka seljast vel, þótt engin trygging sé fyrir því, að bók númer t-vö sé góð, þótt sú fyrsta hafi verið það. Að sjálfsögðu séu á þessu und- antekningar — en umfram aUt þurfi að beina börnunum inn á þá braut að lesa vel. Það er óþarfi að fara mörgum orðum u m það, hve geysilegt ga-gn starfsemi sem þessi hlýtur að gera og, hve mikill stuðn- ingur og hjálp það er fyrir forráðamenn barnanna, að sérfróðir menn skuli fjalla um þetta mál af jafn mikilli alvöru og hér er gert. Ekki má gera ráð fyrir, að heimilin geti almennt keypt allar þær bækur, sem böm- in þrá að lesa, en sem betur fer hefir skiln- ingur á þessum málum farið vaxandi, og barnabókasöfn eru nú hægt og hægt að verða staðreynd, iþótt mjög mikið skorti á, að slíkt starf sé fullnægjaridi, og fjöldi barna býr við lélegan bókakost, því mið- ur. En skólabókasöfn a. m. k. í mörgum bæjum eru orðin algeng ogi eflast nokkuð árlega og til munu bekkjar-bókasöfn í HEIMILI OG SKÓLI 57

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.