Heimili og skóli - 01.08.1968, Side 16

Heimili og skóli - 01.08.1968, Side 16
hendur fyrir skömmu og sagði frá Barna- bóka-vikunni dönsku. Raunar var það einnig annað, sem varð til þess að ég fór að hugsa þessi mál. Það voru bækur, er mér bárust nýlega, einnig frá Danmörku. En hér er ekki um danskt framlag að ræða einvörðungu, heldur sam- starf landanna fjögurra: Danmerkur, Sví- þjóðar, Noregs og Finnlands. Þetta eru 8 bindi, lesefni handa börnum og er valið af sérfræðingum í barnabókum, einum frá hverju landanna. Ég ‘hefi ekki í annan tíma séð öllu ánægjulegiri bamábækur. Anine Rud frá Danmörku, Eva von Zweigbergk frá Sví- þjóð, Aili Palmén frá Finnlandi og Jo Tenfjord frá Noregi hafa ritstýrt þessu verki. Þetta er sem sé samvinna landanna fjögurra og gefið út af Gyldendal í Dan- mörku og Noregi, forlaginu Otava í Finn- Iandi og Bonniers forlaginu í Svíþjóð. í bókunum er lesefni af ýmsu tagi og mjög fjölskrúðugt. Það eru bæði sögur og ævin- týri, vísur og þulur og alls konar barnagæl- ur og rím. Ekkert er til sparað, thvað myndir áhrærir, bækurnar eru fullar af bráð- skemmtilegum teikningum, gullfallegum litmyndum og alls kyns gríni og gamni. Sums staðar eru nótur með vísunum — þ. e. aðeins laglínan, svo að hægt sé að læra lögin um leið og á allan hátt eru bæk- ur þessar svo vel úr garði gerðar, svo vand- að til frágangs, bæði í efnisvali og öllum búningi, að til hreinnar fyrirmyndar er. Það vakti athyigli mína, að bækur þessar eru prentaðar í Póllandi, en pappír og band er mjög vandað og sterkt. í bókum þessum eru bæði nýjar og gamlar sögur, sígildar, og ekki aðeins frá löndunum fjór- um, sem að 'þeim standa, heldur hefir þetta sérfróða fólk valið efni frá mörgum öðr- um löndum og þýtt á viðkomandi tungur. 60 HEIMILI OG SKÓLI Aftast í bókunum er skrá yfir höfunda, bæði hins ritaða máls og myndanna. Þetta samstarf landanna fjögurra sýnir okkur betur en margt annað, hve alvarleg- um augum nágrannar okkar ó Norðurlönd- um líta á málið í heild. Ekki gat ég að því gert, að mér varð strax hugsað til þess, hve gaman hefði verið fyrir okkur, að ísland hefði verið einn þátttakandinn í þessari samvinnu og notið góðs af þessu merka starfi. Við hefðum sannarlega einnig getað lagt til efni í slíkt verk, því að marga góða barnabóka höfunda höfum við átt og eig- um. Gömul ævintýri með sérstökum ís- lenzkum blæ, þulur og þjóðsögur hefðu sómt sér vel þótt vandasamt hefði verið að þýða. Nú flæðir á markaðinn mikið af bókum fyrir yngstu kynslóðina, ogi það verður að segjast eins og er, að margt er þar skínandi vel gert, margt góðra bóka, en því miður er lí'ka töluvert um lélegt ogi illa unnið efni. Foreldrum og öðrum forráðamönn- um barna er því mikill vandi á höndum að velja. Ekki er við því að búast, að við get- um keppt við stórar og mannmargar þjóð- ir í þessum efnum — lesendahópurinn er ekki stór miðað við nágrannaþjóðir okk- ar, upplögin geta ekki alltaf orðið stór og það er dýrt að gefa út á íslandi í dag. En einmitt vegna þess þarf að vanda til þessa starfs — og stundum hvarflar að manni, hvort ekki væri mikill greiði við alla, að bækurnar væru færri, sem kæmu út, en að sama skapi betri og vandaðri. Það væri freistandi að ræða þessi mál ýtarlegar en hér hefir verið gert, þvi að þetta er margslungið og í mörg horn að líta. En eins og málunum er háttað í dag er allt of mikið um tilviljanir en ekki eins mikið hugsað um það, að koma á framfæri því bezta, sem skrifað hefir verið fyrir

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.