Heimili og skóli - 01.08.1968, Qupperneq 19

Heimili og skóli - 01.08.1968, Qupperneq 19
ur neitaði til dæmis að segja nokkurt orð fyrstu vikuna, sem hann dvaldi þarna. En enginn skipti sér af þessari sérvizku, og einn dag gekk hann með hinum börnunum á fund Joyce, tók sér stöðu fyrir framan hana og, sagði nú fyrstu setninguna, sem hann hafði sagt eftir að hann kom í stofn- unina: „Eg elska yður.“ OCKENDEN-VINIRNIR Stofnunin staskkaði og Joyce var á stöð- ugum ferðalöigum um England og megln- landið til að smala saman nýjum hópum af flóttabörnum, segja frá stofnun sinni og útvega peninga, fatnað og tæki til rekst- ursins. Astor lávarður, sem nú er látinn, hafði verið einn af hennar beztu styrktar- mönnum. Þegar hún hafði lesið ræðu eina, sem hann hafði flutt um byltinguna í Ung- verjalandi og flóttamannavandamálið, sem af henni spratt, skrifaði hún honum bréf og spurðist fyrir um, hvort hann vissi um flóttamenn annars staðar í Evrópu, sem ættu við enn verri kjör að búa en í Ung- verjalandi. Þetta varð til þess, að Astor lávarður bauð henni að heimsækja sig á landsetri sínu í Clivenden um næstu helgi, til þess að ræða um flóttamannavanda- málið. Á leiðinni til Clivenden hafði Joyce sótt mikið af notuðum fötum, sem hún kom fyrir í ferðatösku aftur á bílnum. Þegar hún kom til búgarðs lávarðarins, hafði þjónn einn fengið' fyrirskipun um að taka farangur hennar og fara með hann til her- bergis hennar. Þegar hún litlu síðar gekk upp í herbergi sitt til að hafa fataskipti, sá hún sér til mikillar skelfingar, að þjónn- inn hafði ekki aðeins komið með hennar eigin farangur, heldur einnig hið stóra ferðakoffort með notuðu fötunum, og stofustúlkan hafði breitt vandlega úr þessu öllu á rúm hennar. En þrátt fyrir þennan meinlausa misskilning, varð för hennar hingað hin ágætasta, og Astor lávarður varð eftir þetta einihver bezti talsmaður hennar og þeirrar stofnunar, sem hún bar svo mjög. fyrir brjósti. Flóttabarn getur dvalið á hæli Joyce Pearces fyrir 8000 krónur (danskar) á ári: Það er helmingi lægra gjald en á hælum þeim, sem ríkið rekur. Langmestur hluti peninganna komu frá hinum svonefndu Ockendenvinum, en þeir eru um 20.000 í Englandi. Stúdentar við háskólann í Aberystwyth söfnuðu til dæmis 120 þús- und krónum handa stofnuninni. Maður einn í Yorkshire sendir reglulega þá pen- inga, sem hann sparar við að reykja ekki. 011 fjármál stofnunarinnar annast hátt- settur bankamaður ásamt duglegum endur- skoðanda. Joyce neitar að fást við reikn- ingshald meira en brýn nauðsyn krefur. „Mitt hlutverk er að sjá um hin mannlegu vandamál, eftir því sem þau falla okkur í skaut,“ segir hún. „Og fram að þessu hef ég getað útvegað næga peninga.“ EINS OG EIN FJÖLSKYLDA Nú eru 15 Orcenden Yenture-heimili í Englandi. Hverju heimili er stjórnað af forstöðukonu eða hjónum, sem taka þetta starf að sér fyrir lítil laun. Eins og í venju- legri fjölskyldu, hjiálpa börnin til við hin daglegu störf og finna því til persónulegrar ábyrgðar á öllum störfum, hvert á öðru og fyrir sjálfum sér. í hverri viku fá þau vasapeninga, frá einni krónu og síðar meira, þegar þau stækka. í fyrstu eyða þau þessum pening- um jafnharðan, en seinna læra þau að spara til að geta veitt sér eitt eða annað — nema Stanislaw. Hann er alltaf svo eyðslu- samur. Dag einn sá ég að hann horfði HEIMILI OG SKÓLI 63

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.