Heimili og skóli - 01.08.1968, Síða 23
ÞaS eirikennilega hefur svo gerzt,. að
það eru ekki kennararnir yfirleitt, sem fara
fram á þessa róttæku endurskoðun. Held-
ur ýmsir menn aðrir, sem ekki eru kunn-
ugir skólunum. Meðal annars stjórnmála-
menn og blaðamenn, sem þurfa alltaf að
slá einhverju upp til að vekja á sér athygli.
Ekki ber þó að skilja orð mín svo, að ég
hafi á móti því, að skólalöggj öfin verði
endurskoðuð, enda verði valdir til þess
menn, sem hafa þar ekthvað verulegt til
málanna að leggja. Slík endurskoðun gæti
aldrei leitt nema gott af sér í lýðræðislþjóð-
félagi.
Það þyrfti til dæmis að endurSkoða fram-
haldsmenntunina og kemur þá til þess, að
ef til vill þyrfti að breyta löggjöf. Það er í
raun og veru fáránlegt að unglinganámið
skuli þurfa að fara fram á tveimur skóla-
stigum.
Það hefði aldrei átt að bæta unglinga-
stiginu við gagnfræðaskólana. Það var
betur komið hjá barnaskólunum, þótt það
sé kannski of seint að sjá það nú. Það
hefði þurft að stokka námsskrá unglinga-
stigsins og barnastigsins alveg upp og færa
þar margt til, svo að tíminn nýtist betur.
Ég sakna til dæmis fræðslu fyrir afgreiðslu-
fólk í verzlunum í gagnfræðaskólana. Mér
rennur oft til rifja, hvað þetta fólk er illa
að sér í starfi sínu, og hve lítið það kann
að umgangast annað fólk með háttvísi og
kurteisi. Það kann elkki einu sinni að
brosa, hvað þá að veita lipra og kurteisa
þjónustu. Það mætti svo aftur spara tíma
í 2—3 efstu békkjum barnaskólanna með
því að nýta tímann betur. Vera til dæmis
ekki að tvílæra sömu námsgreinarnar, svo
sem landafræði, náttúrufræði og að
nokkru leyti sögu.
Ég gat þess áðan, að námsaðferðir yrðu
úreltar. Ein er þó sú námsaðferð, sem
Búðaleikur er þroskandi leikur.
aldrei verður úrelt, en það er að lesa bœk-
ur. Helzt góðar bækur. Þá er það eitt
kennslutæki, sem verður aldrei úrelt, en
það er bókin. Efni hennar getur orðið úr-
elt, en bókin sem slík lifir alltaf góðu lífi
á meðan einhverjir vilja lesa hana. Bókin
lifir, ef vel hefur tekizt með efni hennar.
Þetta gæti orðið okkur nokkur vegvísir í
leit okkar að verðmætum. En það er hægt
að misnota bókina eins og allt annað.
Ég gat þess hér að ofan að börnin væru
látin tvílæra nokkrar lesgreinar, læra sömu
lesgreinina bæði á barnafræðslustiginu og
aftur á unglinga- eða gagnfræðastiginu.
Þetta er líklegt til að valda námsleiða. Nem-
enduur vilja fá eitthvað nýtt með hverjum
bekk, eitthvað forvitnilegt. Þá er það ekki
síður nauðsynlegt að kvikað sé frá lexíu-
HEIMILI OG SKÓLI 67