Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 25

Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 25
»Segið, að égr hafi verið fánaheri« Allur heimurinn heiSrar minninguna um séra Martin Luther King eftir að hann var myrtur á svívirðilegan hátt. Sá heiður var meiri en hann sjálfur hafði búizt við. Þegar hann flutti prédik- un sína í kirkju sinni tveimur mánuðum áður en hann var myrtur, var engu líkara en hann sæi fram í tímann. Það kemur fyrir okkur öll, að við setjumst nið- ur og hugsum alvarlega til þess dags, þegar við verðum fórnarlömb þess, sem er samnefnari alls lífs, hinni óþekktu stærð, sem við köllum dauð- an. Við hugsum öll um þetta. Það kemur heldur ekki svo sjaldan fyrir, að ég hugsi um dauða minn, og ég hugsa um mína eigin greftrun. Eg hugsa ekki um þetta á neinn sjúklegan hátt, en geri mér aðeins grein fyrir hvað ég vildi, að menn segðu við mig við slíkt tækifæri. Eg ætla nú að segja ykkur frá því, ykkur, sem sitjið hér og hlustið á mig. Ef eitthvert ykkar verður þá viðstatt, þegar dauðan ber að garði, er rétt að þið fáið að vita, að ég óska ekki eftir langri og viðhafnarmikilli jarðarför. Og ef þið finnið einhvern, sem getur haldið yfir mér snotra ræðu, þá segið honum, að hann megi ekki tala of lengi. Ég held, að ég viti iíka, hvað ég vildi að hann segði helzt. Segið honurn, að hann skuli ekki minnast á, að skólana eftir tækninni frá neðstu þrepum þeirra. Grunar mann, að tæknin sé orðin að takmarki, sem allt annað verður að þjóna, en ekki maðurinn sjálfur og þroski hans. Á að miða menntunina við það, að maðurinn verði þægt hjól í vél. Eða á að miða hana við það, að maðurinn verði sjálfstæður, hugsandi einstaklingur, sem hefur vélar að vísu í þjónustu sinni, en verður aldrei þræll vélanna. Við verðum að gera okkur grein fyrir þessu áður en lengra er haldið. Jafnvel áður en farið er ég hafi fengið Nóbels verðlaunin, því að það er ekki svo mikils vert. Ségið honum, að hann skuli ekki minnast á all- ar þær heiðursviðurkenningar, sem ég hef hlotið, því að það er heldur ekki svo mikils virði. Það er líka óþarfi að geta þess, hvar ég hef gengið í skóla. En það myndi gleðja mig, ef einhver léti þess getið, að Martin Luther King hefði helgað líf sitt til að þjóna öðrum. Það myndi einnig gleðja mig mikið, ef einhver léti þess getið, að Martin Luther King hefði reynt að elska aðra menn. Það myndi einnig gleðja mig mikið ef þið vilduð láta þess getið, þann dag, að ég reyndi að gera skyldu mína og heltast ekki úr lestinni, og ég reyndi að gefa þeim hungruðu brauð og hin- um nöktu klæði. Það myndi gleðja mig ef þið segðuð, að ég heimsækti eins marga og ég gæti af þeim sem sætu í fangelsum. Það myndi gleðja mig, ef þið segðuð að ég reyndi að elska mann- kynið og þjóna því. Já, ef ykkur sýnist, þá segið, að ég hafi verið fánaberi. Segið, að ég hafi verið fánaberi réttlæt- isins. Segið, að ég hafi verið fánaberi friðarins, hins góða og heiðarlega. Þá munu allir aðrir hlutir verða smáir og óverulegir. Ég læt ekki eftir mig neina peninga. Ég læt ekki eftir mig neitt af þessa heims gæðum. Hið eina, sem ég læt eftir mig, er málefnið, sem ég barðist fyrir. Þýtt H. J. M. að sníða skólana eftir tækninni. Maður- inn fyrst.... Tæknin svo. Heimurinn nötrar og skelfur af tækni. Maðurinn skelfur af ótta við tækni sína. hann óttast, að svo geti farið, að hann ráði ekki við hana og hún tortími honurn. Þeir, sem eiga að marka Stefnuna á sviði uppeldis- og skólamála á næstu áratugum, eiga um það að velja, að rækta meiri efnis- hyggju og leggja grundvöll meiri tækni annars vegar, eða benda mönnum á hoð- skap Fjallræðunnar hins vegar. H. J. M. HEIMILI OG SKÓLI 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.