Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 26

Heimili og skóli - 01.08.1968, Blaðsíða 26
PEARL S. BUCK: DÆTURNAR MÍNAR OG P-PILLAN Þegar engin kona þarf lengur að ótt- ast, að hún verði barnshafandi ó móti vilja sínum, hvernig skýrum við það þó fyrir þeim ungu, að óbyrgðartilfinningin sé mikilvægari en nokkru sinni fyrr? Það sitja tvær loonur og bíða mín í dag- stofunni. Við ætlum að ræða hjálp til hungraðra barna í Asíu. En ég verð að játa, að mér 'kom mjög á óvart fyrsta setn- ingin, sem við mig var sögð, þegar ég kom inn í stofuna til kvennanna. „Við sitjum nú hérna og ræðum um p- pilluna,“ sagði ein konan. Allir vita, hvað p-pillan er.... Það er lítil tafla, og þó getur farið svo, að hún verði samfélagi okkar hættulegri en kjarn- orkusprengjan. „Ég er hrædd um, að p- pillan henti okkur ekki vel hér í löndum Asíu“ segi ég við konurnar. „Þér hlægið. Við erum nú ekki aðeins að hugsa um Asíustúlkurnar,“ segir ein þeirra. „Við erum að tala um o'kkar eigin dætur.“ Ég þekki þessar stúlkur. Þær eru 17 og 18 ára gamlar, glæsilegar og menntaðar. „Já, en þér eigið þó ekki við, að Anna og Jóna muni.... “ „Eg veit sannarlega ekkert um það,“ 70 HEIMILI OG SKÓLI segir konan, sem var eldri. „Og ég vil held- ur gefa Jónu p-pilluna en eiga það á hættu að hún verði barnshafandi móti vilja sín- um.“ Þær ræddu vandamiálið nokkurn tíma og ég hlustaði. Þetta er alvarlegt vandamál fyrir þær, þegár börn þeirra verða allt í einu að taka nýja afstöðu til kynferðis- lífsins, eftir að p-pillan hefur verið tekin í notkun aknennt. Ég á sjálf sjö dætur. Þar af hafa þrjár ekki náð tvítugsaldri, svo að það er ástæða fyrir mig að huigsa um þetta vandamál. Á meðan ég sit hér og skrifa, dettur mér allt í einu í hug að leita álits þeirra á þessu. Tvær þeirra eru heima þessa stundina. Önnur 16, hin 17 ára. „Hvaða skoðun hafa vinkonur ykkar í raun og veru á p-pillunni?“ spyr ég. „Og hvaða skoðun hafið þið á því máli?“ Þær leystu frá skjóðunni eins og venju- lega. Stúlkan mín, sem var 17 ára, en ákaf- lega fjörleg og félagslynd, en stundum nokkuð tannlhvöss, sagði: „Ég þekki heilan hóp, sem notar pilluna. Flestar telja ekkert við Iþetta að athuga. Ef maður er ástfangin í strák, já, jalfnvel þótt maður kunni bara vel við hann.“ „En þú sjálf?“ „Mér hefur ekki þótt svo vænt um neinn ennþá. Ég veit ekki, hvað ég myndi gera, ef mér þætti reglulega vænt um einhvern.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.