Heimili og skóli - 01.08.1968, Síða 39

Heimili og skóli - 01.08.1968, Síða 39
lært að skrifa? Allt sumarleyfi sitt sat hann heima í söðlavinnustofu föður síns og klippti út leðurpjötlur þangað til húð- in var farin af fingrum hans. Hann reyndi að búa til dulmálslykla, þar sem bókstaf- irnir voru gerðir úr þríhyrningum, ferhyrn- ingum og hringlaga pjötlum með alls kon- ar tilbreytingum, en ekkert af þessum kerfum þótti honum nýtilegt. Braille var nú orðinn kennari við blindraskólann í París og dag nokkurn sat hann í kaiffilhúsi einu ásarnt einum vina sinna, sem las upphátt fyrir hann úr dag- blaði. Með fremur lítilli athygli hlustaði hann á frásögn um foringja einn í hern- um, sem hafði gert stafróf með upphækk- uðum merkjum, punktum og strikum, sem hægt var að lesa úr í myrkri. Eftir þessari grein að dæma átti að vera hægt að lesa með snertingu einni saman, án þess að þurfa til þess nokkra birtu. Þegar Braille varð það Ijóst, hvaða möguleikar fólust í þessari uppgötvun, fór hann að kalla og hrópa og berja í borðið. Gestgjafinn kom þegar á vettvang: „Herra Braille! Þér truflið hina gestina.“ „Fyrirgefið, herrar mínir,“ sagði hann auðmjúkur. Ég held að ég hafi leyst vanda- mál hinna blindu, sem hefur verið óleys- anlegt fram að þessu.-----------Nú get ég kennt þeim að lesa.“ I fylgd með vini sínum heimsótti hann næsta dag Gharles Barbiern herdeildarfor- ingja. „Viljið þér ekki útskýra fyrir mér að- ferð yðar við að lesa í myrkri?“ Hann gat þess um leið, að blindir menn væru lokað- ir úti frá því ljósi, sem lestur bóka gæti varpað inn í hina dimmu tilveru blindra manna. „Jú, það skal ég gjöra með ánægju. Þann möguleika hafði ég ekki hugleitt,“ svaraði foringinn. Hann útskýrði nú fyrir honum, hvernig hann með ali einum sam- an þrýsti móti í þykkan pappa, svo að hægt var að finna hæðirnar hinum megin :cneð fingrunum. Hann hafði fundið þetta frum- stæða kerfi upp fyrir herinn. Einn punkt- ur merkti „áfram“ — tveir punktar merktu „aftur á bak“ o. s. frv. Hann lauk máli sínu með því að segja: „Þér gætuð gert merkjakerfi fyrir allt stafróflð. Það ætti að vera mögulegt.“ Upp frá þessu vann Braille af óþreyt- andi elju og unni sér engrar hvíldar fyrr en fyrsta bókin með þessu punktakerfi var fullgerð. Það var út af fyrir sig dálítið kaldhæðnislegt, að helzta áhald hans við þetta verk var hið sama, sem hafði gert hann blindan. Hann hafði reynt aftur og aftur. Þreifað sig áfram. Nokrar tilraunir heppnuðust, aðrar mistókust, en eftir fimm ára baráttu var kerfi hans fullgert. Hann notaði rétthyrning sem lykil með sex hol- um. Hann bjó til 63 afbrigði, sem tákn- uðu allt stafrófið og auk þess gátu táknað stuttar setningar, skammstafanir og stutt orð eins og til dæmis „og“, „eða“, „til“. A meðan hann vann þetta mikla verk, þjáðist hann af kvalafullum sjúkdómi, sem að lokum dró hann til dauða. Hann varð aðeins 43 ára gamall. Árið 1836 var Braille 27 ára gamall. Hann hafði þá skrifað með blindra letri úrval úr verkum enska skáldsins Milton og hafði þá auðvitað notað hið nýja kerfi sitt. „Það er eðlilegt, að ég verði fyrstur til að nota það og sæki þá efnið til hins mikla skálds,“ sagði hann. Á blindraskólanum hélt hann nú fyrir- lestur um þetta ketfi sitt fyrir kennurum og nemendum, og sýndi þeim, að hann gat með þessari punktaskrift skrifað ná- HEIMILI OG SKÓLI 83

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.