Heimili og skóli - 01.08.1968, Page 41

Heimili og skóli - 01.08.1968, Page 41
ARLENE SILBERMAN: SEGIÐ FRÁ HLUTUNUM, EINS OG ÞEIR ERU Við gerum börnum okkar bjarnar- greiða, ef við ekki þegar i upphafi leggj- um fyrir þau spilin ó borðið eins og þau eru. Mér datt margt í hug, er ég var stödd við skólauppsögn fyrir skömmu og hlustaði á skólastjóranji kvteðja hina hálfvöxnu ungl- inga meðal annars með þessum orðum: „Eg óska ykkur gæfu og gleði í lífinu. Ég óska þess að sorgin verði ekki á vegi ykkar eða önnur ógæfa. Guð gefi ykkur heilbrigði og efnalega hagsæld. Ég óska ykkur þess, að þið þurfið aldrei að verða fyrir vönbrigðum eða ótta.... “ Þessi góðviljaði maður óskaði unga fólk- inu gæfu og gengis, en ekki að það mætti eignast þrek til að bera mótlæti. Hann tal- aði um 'heilbrigði, en ekki um styrk til að bera sjúkdóma. Hann vonaði, að auðsæld félli þeim í skaut, en hann gleymdi að óska þeim hæfileika til að mæta erfiðleikum. Mig langaði í þetta skipti mest til að ganga til hans og segja: „Segið heldur unga fólk- inu sannleikann af lífinu eins og það er. Segið þeim, að það muni vart komast hjá því að verða fyrir sorgum, jafnt sem gleði. Allt frá dögum Adams og Evu hefur hver einasta kynslóð orðið að hjúkra hinum sjúku og grdftra hina dánu. Þessir ungling- ar munu þar ekki verða nein undantekn- ing. Segið þeim, að þeir muni þurfa á kröftum sínum að halda, þegar syrtir í ál- inn. Hjá því kemst enginn.“ Ég er móðir 'fjögurra sona og einnig kennslukona, sem hef kennt hundruðum barna. Ég hef því íhaft gott tækifæri til að kynnast því, hve fáir af okkur segja hlu-t- ina eins og þeir eru. Við látum allt of oft skína í það, að skólaganga sé eintómt gaman, að vinna sé alltaf jafn skemmtileg og hjónahandið sé munnfylli af sælu bimnaríkis. Er þá að undra, þótt nokkuð margir hverfi frá skólanum í ótíma, þegar þeir komast að því að skólanámi fylgir •bæði þrældómur og gleði, að sumir hlaupi frá störfum sínum, þvií að öll störf geta orðið leiðigjörn, þegar til lengdar lætur. Er þá nokkur furða, þótt sumir verði Isiðir á hjónabandinu og slíti því, þegar þe’r uppgötva að hinn sjöundi himinn er ekki ævilangt heimilisfang dauðlegra manna? Þetta fólk hefur verið blekkt, og það hefur engan varasjóð af innra þreki til að ausa af, þegar það verður fyrir vonbrigðum. Við bjuggum einu sinni í nábýli við hjón, þar sem bæði maðurinn og konan HEIMILI OG SKÓLl 85

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.