Heimili og skóli - 01.08.1968, Page 48
að gera okkur grein fyrir þessu við og við,
á eins raunsannan hátt og unnt er.
Ég vil nefna nokkra eiginle'.ka og við-
horf, sem að meira eða minna leyti móta
framkomu foreldranna. Svo getur þú, les-
andi góður, haft blað og hlýant og merkt
við það, sem getur að einhverju leyti átt
við þig. Á eftir getur þú svo hugleitt að
hve miklu leyti þetta kemur þér við, og þá
um leið athugað að hve miklu leyti er
ástæða til að endurSkoða alla þína fram-
komu.
Sumir foreldrar eru eftirgefanlegir,
óákveðnir, sveigjanlegir. Aðrir eru harðir,
sterkir, drottnandi.
%
Harka og festa er ekki það sama og
vonzka, en það er einnig til fólk, sem er
illkvittið, kannski aðeins í hinu smáa, t. d.
með stríðni, hæðni, fýlu, andmælum o. s.
frv. En það er einnig til kærleiksríkt fólk,
vingjarnlegt, gott og ihjálpfúst.
Sumt fólk er glatt og fjörugt, annað er
ömurlegt og alltaf með sorgarsvip. Það eru
til hæði svartsýnis- og hjartsýnismenn.
Sumir eru alltaf hræddir við allt og var-
kárir, aðrir eru fífldjarfir glannar. Sumir
eru opinákáir og hispurslausir, aðrir eru
fátalaðir og innilokaðir. Það eru til sann-
leikselskandi, en það eru líka til óáreiðan-
legir menn og lygalaupar, eða öllu heldur
menn, sem alltaf fara heldur ógætilega
með sannleikann.
Við höfum okkar langanir og óskir eins,
og við hötum og fyrirlítum annað.
Við eigum okkar samúð og andúð.
Við höfum okkar 'kosti og galla.
Við höfum okkar skoðanir á því, hvað
gott er o.g illt, rétt og rangt, fagurt og
ljótt.
Allt Iþetta hefur áhrif á hörnin okkar, oft
á mjög flókinn hátt, sem erfitt getur verið
að átta sig á, enda gerum við það sjaldnast
92 HEIMILI OG SKÓLI
til hlítar, ef við leggjum okkur ekki fram
um það.
Þessi listi yfir foreldra og fordæmi þeirra
er ekki tæmandi. Þið getið sjálf bætt við
eftir þörfum. Þessir eiginleikar geta verið
í meira eða minna ríkum mæli hjá ’hverj-
um og einum. Þeir 'hafa hér verið settir upp
sem andstæður, en það er vel hægt að
hugsa sér, að þessar andstæður séu fyrir
hendi í okkur sjálfum og við notum þær
sitt á hvað, oft eftir ytri aðstæðum. Það
getur li'ka átt rétt á sér, einnig ivarðandi
fordæmið. Þá eru fyrir hendi möguleikar
á að harnið læri af fordæmi okkar að
'hegða sér eins og aðstæðurnar krefjast
hverju sinni, en verði ekki þræll einhverra
fastra venja og siða.
Sumir þessara eiginleika og lífsvenja
laða til eftirbreytni, en aðrir vek.ja and-
stöðu og uppreisnarhug.
Allar venjur eru smitandi og allar geta
vakið andstöðu við viss skilyrði. Og nú
er engin 'ástæða til að neita því, að það eru
vissar lífsvenjur, sem við gjarnan vildum
að hörn okkar tileinkuðu sér. Við vildum
gjarnan, að börn okkar færu að dæmi okk-
ar á mörgum sviðum. Það eru líka til for-
eldrar, sem hafa hugrekki til að játa, að
þau óski ekki éftir að börnin taki foreldr-
ana allt of mikið sér til fyrirmyndar. I báð-
um þessum tilvikum er foreldrunum Ijós til-
hneiging barnanna til að Hkja eftir foreldr-
unum.
Ótti og kvíði eru líklegir til að hafa
áhrif á hörnin. Kvíðafullir foreldrar eiga
oft kjarklítil hörn, og oft eru það nákvæm-
lega sömu hlutirnir, og foreldrarnir óttast
og kvíða fyrir.
Eiginleikar, sem eru líklegir til að veita
félagslega viðurkenningu í fj ölskyldunni,
umlhverfinu, þjóðfélaginu, ganga oft frá
foreldrum til barna. Þeir sameinast oft