Heimili og skóli - 01.08.1968, Síða 51
BÆKUR OG RIT
Ríkisútgáfa námsbóka hefur nýlega sent frá sér
3. hefti Æfingabókar í lestri eftir Jennu og Hreið-
ar Stefánsson: Það er leikur að lesa. I þessu
hefti, sem er allstórt, eða 128 blaðsíður, eru þrjár
sögur eða ævintýri? Sagan um seina Steina, Kát-
ir krakka rog Ævintýrið í skóginum. Baltasar
hefur teiknað myndirnar í bókina af sinni al-
kunnu snilld.
Þau Jenna og Hreiðar eru fyrir löngu orðnir
þjóðkunnir barnabókahöfundar, og þó að bók
þessi sé fyrst og fremst tekin saman sem lestrar-
bók, eða æfingabók í lestri, er hún þó laus við
þær þreytandi endurtekningar, sem oft er ein-
kenni á slíkum bókum. Hér eru fyrst og fremst
lærdómsríkar og skemmtilegar sögur á ferðinni.
Bókin þjónar því tvennskonar tilgangi, að vera
skemmtibók og æfingabók í lestri, enda eru höf-
undarnir þaulvanir smábarnakennarar.
Kassagerð Reykjavíkur hefur prentað bókina
og er hún vönduð að öllum frágangi. Hafi höf-
undar og útgefandi þökk fyrir hana.
SKÓLASKÝRSLA barna- og gagnfræðaskóla
Reykjavíkur 1966—67.
Þetta er allmikil bók, en er þó stærri en hún
Þetta eru hin réttu viðbrögð.
Hér er komið að mjög jákvæðu atriði í
öllu uppeldi, eða að minnsta kosti sem get-
ur orðið mjög jákvætt.
Allt uppeldi er gagnkvæmt — gagnverk-
andi.
Við kennum börnum okkar mikilvægan
lærdóm með því að vera þeim góðar fyrir-
myndir — hafa fyrir þeim gott fordæmi.
Gefa þeim góð ráð og festa með þeim góð-
ar reglur. En við getum einnig sannarlega
lært mikið af börnum okkar, ekki sízt með
því að veita nákvæma athygli, hvernig þau
bregðast við reglum okkar og fordæmi. V ið
getum lært að verða betri uppalendur. Ef
við skiljum þetta, verðum við smátt og
sýnist. Hér er sem sé sýnt allt skótakerfi Reykja-
víkurborgar í hnotskurn. Hér er í fyrsta lagi þátt-
ur um yfirstjórn fræðslumála Reykjavíkur, skól-
ana eins og þeir voru 1. október 1966. Þá er þarna
skýrt frá breytingum á skólahúsnæði, sagt frá
kennsluhúsnæði eins og það er á þessum tíma.
Þá er skýrt frá fjölda deilda og nemenda, svo og
kennara. Getið um skólastjóra allra borgarskól-
anna. Þá er vikið að orlofum og leyfum kennara
þetta skólaár. Þá er þarna kafli um forfallastund-
ir kennara og skipting fastra kennara eftir aldri.
Þá er getið um skólasókn nemenda.
Þá kemur langur kafli um harnapróf og annar
um gagnfræðapróf og birt sýnishorn af prófverk-
efnum, bæði í barnaskólum og gagnfræðaskólum,
meðal annars á gagnfræðaprófi.
Þá er þarna kafli um það, sem lesið er og
kennt í 3. og 4. bekk gagnfræðaskóla. Þá er
þarna kafli, sem er girnilegur til fróðleiks og
nefnist: Fréttir frá skóhtnum. Þar kennir margra
forvitnilegra grasa. Þá koma nokkrir kaflar, sem
ekki þurfa skýringar við, en sýna hvað starf skól-
anna er orðið fjölbreytt. Má þar til nefna:
Skýrsla sálfræðideildar skóla. •— Talkennsla. ■—•
Lúðrasveitir barna og unglinga. •— Tómstunda-
störf í skólum Reykjavíkur. — Barnalesstofur. •—
Umferðakennsla. — Safnferðir og listkynning. —
Tilraunir með ný verkefni við reikningskennslu.
smátt sbörnum okkar góðar fyrirmyndir.
Við eigum ekki að krefjast nákvæmra
eftirlíkinga. Við eigum að vera eðlilegar
og raunsannar manneskjur, sem hafa hug-
rekki til að kannast við galla sína. Við
skulum ekki reyna að gera börnin neinar
spegilmyndir af okkur sjálfum, og við skul-
um reyna að forðast þau mistök, sem leiða
af sér uppreisnaranda. Þá mun barnið
sjálft 'brátt átta sig á því hvenær það vill
fylgja fordæmi okkar, og að hve miklu
leyti það vill sneiða hjá því.
Dansk pædagogisk tidskrift.
H. J. M. þýddi.
HEIMILI OG SKÓLI 95