Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Blaðsíða 15
•um faafi gengiö vel og skörulega fram til þess að
ná þessum árangri.
Vetrarpmglð 1941»
Þegar kom fram á þingið 1941 var því hreyft
innan ríkisstjórnarinnar af hálfu Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokksins, að útlit allt innanlands og
utan væri svo ískyggilegt, að hæpið virtist að kosn-
ingar gætu farið fram til alþingis, eins og lög mæltu
fyrir um að skyldu fram fara vorið 1941.
Þetta mál var fyrst tekið til athugunar innan mið-
stjórnar Alþýðuflokksins hinn 25. apríl 1941, þar
sem ég skýrði frá hvaða málaleitun hinir stjórn-
arflokkarnir hefðu sent Alþýðuflokknum um þetta
atriði. Á fundi miðstjórnarinnar 9. maí sama ár var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„1 tilefni af því, að báðir samstarfsflokkar Alþýðu-
flokksins höfðu fyrir sitt Ieyti samþykkt, að alþing-
iskosningum verði frestað fyrst um sinn, gerir
flokksstjórnin og þingflokkurinn svofellda ályktun:
Með því að það ástand er í landinu, að telja má
óhugsanlegt að almennar kosningar geti farið fram í
anda stjórnarskrárinnar og kosningalaga, telur mið-
stjórnin og þingflokkurinn æskilegt, ef framkvæm-
anlegt þykir, að kosningum verði frestað um sinn
og heimilar þingmönnum flokksins að taka afstöðu
til þessa máls í samræmi við þessa ályktun.“
Á fundi þingflokksins 15. maí var samþykkt að
standa að ályktun um frestun kosninga til alþingis.
Um þetta atriði varð enginn verulegur ágreining-
13