Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Síða 16

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Síða 16
ur innan miðstjórnar og þingflokks, en ég skal eng- an dóm á það leggja, hvort kosningafrestunin hafi verið réttmæt eða eðlileg, en hvort sem svo hefir verið eða ekki er í sjálfu sér aukaatriði úr því sem komið er, — en ég vildi aðeins rekja aðdraganda þessa máls. Skömmu eftir að kosningafrestunin hafði verið' samþykkt, komu fram tillögur, sérstaklega frá Framsóknarflokknum, um sérstakan launaskatt. Þegar í öndverðu er þessar tillögur komu fram,. lagðist fulltrúi Alþýðuflokksins í ríkisstjórninni gegn þeim mjög eindregið, en fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins hnigu að lokum, um skeið, til samkomu- lags við fulltrúa Framsóknarflokksins um lögfest- ingu slíks launaskatts. Um þetta mál urðu allhörð átök á alþingi vorið 1941, en svo fór að lokum sök- um harðrar og einbeittrar andstöðu Alþýðuflokks- ins, að launaskatturinn var ekki samþykktur, en í stað þess lög, er heimiluðu ríkisstjórninni að gera ýmsar ráðstafanir til þess að draga úr og halda niðri dýrtíðinni, og afla fjár til ríkissjóðs í þessu skyni. En einmitt á þess alþingi var mikið rætt um dýr- tíðarmálin og hafði Alþýðuflokkurinn fyrir sitt leyti lagt fram ítarlegt frumvarp um það efni, sem var í fullkomnu samræmi við ályktanir þær, er sam- þykktar voru á flokkþinginu haustið 1940. Fjallaði frumvarpið bæði um það, að herða mjög á öllu verð- lagseftirliti og láta það ná til innlendra vara, og ennfremur að leggja það í hendur eins og sama að- ilans. Þá var ætlast til að afnumdir yrðu tollar á nauðsynjavörum, að sérstakt eftirlit yrði með farm- 14

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.