Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Side 17
gjöldum til þess að fá þau lækkuð, og loks að afla
fjár í ríkissjóð til þess að halda niðri verðlaginu í
íandinu.
Þetta frumvarp Alþýðuflokksins náði þó ekki
samþykki þingsins, því að báðir hinir höfuðflokk-
arnir, Sjálfstæðisfloklcurinn og Framsóknarflokkur-
inn, voru því andvígir. En í stað þess voru sett.
heimildarlög þau, er að framan getur, eftir að hindr-
að hafði verið fyrir atbeina Alþýðuflokksins, að lög-
leiddur væri mjög óréttlátur skattur á launafólki í
landinu.
Því miður varð sú raunin á, að heimildarlögin um
ýmsar ráðstafanir til þess að hindra og draga úr dýr-
tíðinni, urðu aldrei framkvæmd, og olli því að
mestu andstaða Sjálfstæðismanna gegn höfuðatriði
laganna, og reyndist ríkisstjórnin því ómegnug þess
að framkvæma það, sem alþingi hafði þó fyrir
hana lagt. Sýnir saga þessa máls, betur en flest ann-
að, hve ólík voru sjónarmiðin innan samstjórnar-
innar, þegar til kastanna kom um þýðingarmiklar
ráðstafanir í dýrtíðarmálunum. Tvennt kom einkum
berlega í ljós: að Sjálfstæðisflokkurinn vildi hlífa
stríðsgróðamönnunum og hindra að hömlur væru
settar á hækkun stríðsfarmgjaldanna, en tollar eft-
irgefnir, að Framsóknarflokkurinn fékkst ekki til
þess fyrir sitt leyti, að gera neinar þær ráðstafanir,
sem til þess gætu orðið, að halda í hóflegu verði
innlendu framleiðsluvörunum, sem seldar voru til
neyzlu í landinu, og nota ef á þyrfti að halda fé úr
ríkissjóði til þess að bæta framleiðendum verðmis-
muninn. En fulltrúi Alþýðuflokksins í ríkisstjórn-
15