Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 31
•aríirði. Fékk sömu bæjarfulltiuatölu í Reykjavik
og hélt svipaðri aðstöðu í bæjarstjórnum annavra
‘kaúpstaða landsins.
Það var mikið gleðiefni fyrir Alþýðuflokkinn, að
halda meirihlutaaðstöðu sinni á Ísaíirði og í Hafn-
arfirði, og sýnir fátt betur, að þegar Alþýðuflokk-
urinn hefir einu sinni náð meirihluta í einhverju
bæjarfélagi. þá varir stjórn hans þar lengi. Alþýðu-
flokkurinn hefir naft meirihluta í bæjarstjórn Isa-
fjarðar um 20 ára skeið og í Hafnarfírði um. 15 ára
skeið. Er auðséð að íbúar þessara kaupstaða vilja
ails ekki skipta um stjórn bæjanna, enda hefir
rekstur bæjanna verið með miklum skörungsskap
og framsýni, þótt tímarnir hafi oft verið erfiðir og
hættulegir.
Að öðru leyti þarf ekki að fjölyrða um þessar
bæjarstjórnarkosningar, en segja má, að eftir atvik-
um geti Alþýðuflokkurinn sæmilega við þær unað.
Eins og fyrr greinir fóru fram alþingiskosningar
hinn 5. júlí 1942. Þeim kosningum lauk á þann veg,
• að Alþýðuflokkurinn fékk 6 þingmenn kjörna og
tæp 9 þúsund atkvæði alls. Það var að vísu talsvert
og tilfinnanlegt tap í atkvæðum miðað við næstu
kosningar á undan, árið 1937, er Alþýðuflokkurinn
hafði rúm 11 þúsund atkvæði. Flokkurinn fékk og
tveimur fulltrúum færra en við alþingiskosningarnar
1937. En á kjörtímabilinu hafði það líka hent, að
•einn af þingmönnum flokksins, Héðinn Valdimars-
:son, hafði gengið á móti vilja flokksins og í lið með
-andstæðingum hans. Var honum vikið úr flokknum
og fylgdu honum nokkrir menn þaðan, er höfðu
29