Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Qupperneq 32
gegnt trúnaðarstörfum og verið í framboðum fyrir
flokkinn að undanförnu. Hlaut Alþýðuflokkurinn
því a. m. k. um stundarsakir að gjalda nokkurt af-
hroð vegna þessa viðburðar, og hafði alltaf verið
við því búizt, að það myndi ekki vinnast upp að
íullu í þessum kosningum, er fram hafa farið í
sumar.
Eg mun ekki að öðru leyti rekja ástæður þær, sem
Jiggja kunna til kosnlngaúrslitanna, því að fáir
munu geta með sanni sagt hverjar þær eru, þótt
vitað sé, að allmikil óánægja var ríkjandi meðal
flokksmanna, einkum þegar á leið, vegna samstjórn-
arinnar, sem Alþýðuflokkurinn tók þátt í, enda var
það í sjálfu sér ekki að undra, eins og framkoma
samstarfsflokkanna var í garð Alþýðuflokksins og
málefna hans.
Að þessum alþingiskosningum afstöðnum var al-
þingi kvatt saman eins og ráðgert hafði verið* og
stjórnarskrárbreytingin endanlega samþykkt, og
nýjar kosningar ákveðnar. Þær fóru síðan fram 18.
og 19. október s.l. í þeim kosningum fékk Alþýðu-
flokkurinn rétt um 8500 atkvæði og sjö menn kjörna
á alþing. Mátti segja að flokkurinn stæði í stað, mið-
að við kosningarnar þremur mánuðum áður, enda
var vart við öðru að búast úr því sem komið var, og
ekki sízt fyrir þá sök, að kommúnistum hafði mjög
aulcizt fylgi, einkum í kaupstöðunum — ekki minnst
í Reykjavík — og gera mátti ráð fyrir að sú alda,.
sem risið hafði til stuðnings þeim flokki í kosning-
unum 5. júlí, myndi hafa áhrif á kosningarnar 18..
og 19. október.
30