Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 41
•öndverðu verið afstaða Alþýðuflokksins til íslenzks
stjórnskipulags, að hér skyldi stofna lýðveldi svo
fljótt sem unnt væri. Nú hefir alþingi íslendinga
einum rómi lýst yfir þessari ákvörðun sinni, og má
xiú segja, að framkvæmd þessa máls sé í undirbún-
ingi, hvenær sem endanlega verður látið til skarar
skríða. En einmitt í því sambandi er rétt að minnast
þess ríkis, er við höfum staðið í sambandi við að
'undanförnu, — Danmerkur, og þeirra ríkja annarra,
er til Norðurlandanna teljast.
Alþýðuflokkurinn hefir frá upphafi tekið nokkurn
þátt í norrænu samstarfi verkalýðshreyfingarinnar,
•og alþýðusamtökin á Norðurlöndum hafa sýnt hinn
bezta skilning í garð íslenzku verkalýðshreyfingar-
innar og stutt hana með ráðum og dáð, samkvæmt
þeirri meginreglu alþýðusamtakanna yfirleitt, að
hafa sem nánast samstarf.
En einmitt nú, þegar flest Norðurlöndin búa við
þröngan kost, hlýtur afstaða íslenzku alþýðusam-
takanna alveg sérstaklega að vera sú, að óska þess,
að sem fyrst verði á ný náið samstarf milli alþýðu-
flokkanna allra á Norðurlöndum, og þjóðanna yfir-
leitt, sem þessi lönd byggja. En til þess að slíkt sam-
;starf geti átt sér stað, þurfa þessi ríki öll að vera
frjáls og sjálfstæð, og það verður ekki dregið í efa,
að hin Norðurlöndin skilja kröfur og óskir íslend-
inga í þeim efnum. Má því fyllilega vænta þess, að
þegar framkvæmd verður stofnun hins íslenzka lýð-
veldis, þá leiði það til aukins samstarfs og vinarþels
xnilli allra Norðurlandaþjóðanna. Að því tel ég að
Alþýðuflokkurinn eigi hiklaust að vinna.
39