Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 52
byggðarinnar með sérstöku tilliti til þess, að í
hverjum landshluta sé höfuðmiðstöð samgangnar
verzlunar og iðnaðar og' þá jafnframt aðalmarkaðs-
staður landbúnaðarsvæða héraðsins. Nýbýla- og
ræktunarlöggjöfin sé endurskoðuð frá rótum með
tilliti til 'þesisa byggðaskipulags og tryggt sem bezt.
að landbúnaðurinn samræmist skipulaginu, verði
rekinn með fullkominni tækni og' þannig sam-
keppnisfær við aðra atvinnuvegi. í sambandi við
þessa nýskipun séu því gefnar nánar gætur, hversu
rata megi æskilegan meðalveg á milli óhjákvæmi-
legrar skipulagningar atvinnuveganna til trygg-
ingar afkomu almennings og þeirrar ofstjórnar, er
gangi of nærri persónulegu frelsi manna og sjálfs-
ákvörðunarrétti. í þessu skyni fylgist nefndin sem
bezt með starfsemi hliðstæðra nefnda, sem skip-
aðar hafa verið erlendis.“
Frá stjórnmálanefnd.
Ályktun um félagsmál.
„17. þing Alþýðuflokksins felur miðstjóm og þing-
mönnum flokksinis að ‘vinna að því, að eftirfarandi
tillögur nái fram að ganga:
1. Lögfestur sé 8 stunda vinnudagur í þeim atvinnu-
greinum, þar sem eigi eru isamningar um 8 stunda
vinnudag eða styttri og því verður við komið, og
ákvæði sett um hvað telja beri eftirvinnu og hvað'
nætur- og helgidagavinnu í samræmi við hina al-
mennu samninga verkalýðBfé'laganna.
Sett sé löggjöf um orlof vinnandi fólks.
2. Jafnframt því sem 8 stunda vinnudegi og orlofi