Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Page 5
ÞINGHALD
Þingsetning.
40. þing Alþýðuflokksins var haldið dagana 24.—25. okt.
1981. Þingið setti formaður flokksins, Kjartan Jóhannsson.
Formaður gat þess að ekki væri venja að minnast látinna
félaga á aukaþingum, en hann vildi gera tvær undantekn-
ingar, þar eð nýlega hefðu látist tveir félagar, sem jafn-
framt miklum flokksstörfum hefðu verið ævifélagar tveggja
flokksleiðtoga. Minntist formaður síðan þeirra Guðfinnu
Sigurðardóttur og Jónu Jónsdóttur sem létust í mánuðinum
og vottaði þingheimur þeim virðingu með því að rísa úr
sætum.
Næst tóku til máls gestir þingsins en það voru þær,
Inge Fischer Möller, varaformaður danska Alþýðuflokksins
og Gerd Engman, framkvæmdastjóri Sambands sænskra
Alþýðuflokkskvenna. Auk þeirra var Eva Fagerström ritari
skipulagsmála í Sambandi Alþýðuflokkskvenna í Svíþjóð
mætt á þinginu.
Formaður kynnti síðan þingsköp og voru þau samþykkt
samhljóða. Þá lagði formaður fram ályktun til stuðnings
pólskum verkalýð, í baráttu hans gegn yfirgangi kommún-
ista. Samþykkti þingheimur báðar tillögurnar með lófataki.
Ályktunin var svohljóðandi:
,,40. flokksþing Alþýðuflokksins skorar á Ríkisstjórn
3