Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Page 11
Tryggvi Karlsson, Gestur Janus Ragnarsson, Ríkharður
Jónsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Sigurður E. Guð-
mundsson sem lagði fram tiilögu varðandi fyrirkomulag
á formannskjöri. Því næst töluðu Árni Gunnarsson og
Guðmundur Árni Stefánsson, sem flutti kveðjur frá Æsku-
lýðssambandi norrænna jafnaðarmanna. Þá töluðu Vil-
mundur Gylfason, Guðmundur Haraldsson og Kjartan
Jóhannsson. Að lokum talaði framsögumaður Haukur
Helgason aftur.
Var þá gengið til atkvæða um tillögur milliþinganefndar.
Vakti forseti athygli á að % atkvæða þarf til að breyta
lögum, þó með því fororði að við breytingar á tillögum
milliþinganefndar nægi einfaldur meirihluti.
Fyrst var borin upp breytingartillaga við 4. gr. laga og
var hún samþykkt með 58 atkvæðum gegn 21.
Þá var borin upp breytingartillaga við 6. gr. laga og var
hún samþykkt með 63 atkvæðum gegn 4.
Borin upp breytingartillaga við 7. gr. laga og var hún
felld með 49 með og 26 á móti.
Þá var borin upp breytingartillaga við 13. gr. laga og
var fyrst kosið um deilitöluna 15 og var hún felld, síðan
deilitöluna 20 og var hún samþykkt með 80 atkvæðum
gegn 4 atkvæðum.
Breytingartillaga við 13. gr., 3. mgr. og var hún sam-
þykkt samhljóða.
Breytingartillaga við 14. gr. Samþykkt með öllum greidd-
um atkvæðum.
Breytingartillaga við 16. gr. Samþykkt með meginþorra
atkvæða gegn tveimur atkvæðum.
Breytingartillaga við 16. gr. Felld með yfirgnæfandi
meirihluta.
9