Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Side 17

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Side 17
þykkt síðasta flokksþings. Það ákvað að efnt skyldi til aukaþingsins til þess að fjalla um lagabreytingar, sem fyrir því lágu, en þóttu ekki hafa fengið nægilegan undirbúning og þyrftu frekari athugunar við, m. a. í hinum ýmsu flokks- félögum víðs vegar um landið. Þá ákvað seinasta flokks- þing að kjósa starfshópa, sem undirbyggju stefnumörkun í byggðamálum annars vegar og fjölskyldumálum hins vegar. Skyldu þessir starfshópar skila álitum sínum til flokksþingsins. I samræmi við þessar samþykktir seinasta flokksþings mun hér á þessu aukaþingi verða gerð grein fyrir starfi þessara starfshópa um byggðamál og fjölskyldu- mál. Til undirbúnings umfjöllunar um lagamál skipaði flokks- stjórn miiliþinganefnd, sem fékk allar framkomnar tillögur um lagabreytingar til meðferðar. Þessi nefnd skilaði áliti sínu á s.l. vori. í því felst annars vegar umsögn um fram- komnar hugmyndir um lagabreytingar og hins vegar til- lögur um breytingar, sem milliþinganefndin taldi að þetta þing þyrfti að taka afstöðu til eða mælti með. Framkvæmdastjórn ákvað að senda álit nefndarinnar til allra flokksfélaga svo að þau gætu tekið þau til umræðu á almennum félagsfundum eins og lög flokksins gera ráð fyrir. Skrifstofa flokksins sendi flokksfélögunum álitið snemma sumars. Þá voru haldnar kjördæmisráðstefnur í haust alls staðar þar sem því varð við komið og voru þessi mál meðal dagskrárliða. — Með þessum hætti hefur Alþýðuflokksfólki gefist gott tækifæri til þess að íhuga þær hugmyndir sem uppi eru um lagabreytingar. Þing- fulltrúar ættu því að hafa kynnst með- og mótrökum við þeim öllum. Það er svo okkar þingfulltrúanna að afgreiða þær — velja og hafna. Án þess að fjalla frekar um þessi atriði á þessari stundu 15

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.