Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Page 19
af fórnfýsi og kjarki, öflum ekki nýrra áskrifenda á næstu
vikum, þá verður að endurskoða útgáfumálin frá grunni,
finna aðrar leiðir.
Þetta er ekkert neyðaróp. Þetta er blákaldur veruleikinn,
sem ekkert okkar má ganga dulið.
* * *
Það var heitt sumar í Alþýðuflokknum þótt veðrið væri
heldur rysjótt. Enginn gengur þess dulinn að undanfarnir
mánuðir hafa verið að mörgu leyti erfiður tími. Eg veit
að þið, hvert og eitt ykkar, hafið fundið það ekkert síður
en ég eða þeir sem framkvæmdastjórn flokksins skipa.
Ég veit að ykkur hefur fallið það þungt alveg eins og
okkur framkvæmdarstjórnarmönnum.
Hvers vegna sættust menn ekki? — spyrja sumir. Svar
mitt er: Ekki einu sinni, heldur tvisvar var sæst á niður-
stöðu, sem framkvæmdastjórn flokksins beitti sér fyrir.
Ekki einu sinni heldur tvisvar voru mér og framkvæmda-
stjórn færðar sérstakar þakkir fyrir framlag okkar. Þau
samkomulög, sem gerð voru, fengu ekki að haldast.
Ályktun um sáttaniðurstöðu var samþykkt í flokksstjórn
og útlistuð þar í smáatriðum að viðstöddum afleysingarrit-
stjóranum og hún var m.a. samþykkt þar af honum. Hann
kallaði hana mjúka lendingu fyrir hádegi næsta dag, en
gekk út frá henni síðar þann sama dag. — Ber þetta vott
um vilja til sátta? Eiga ekki sáttagerðir að fá að standa?
Síðan hófst ófrægingarherferð, sem hefur orðið and-
stæðingum jafnaðarstefnunnar og Alþýðuflokksins elds-
matur. Trúnaðarmenn flokksins og forystulið hans hafa
fengið ýmislegt að heyra og þola, hver af öðrum, gegnum
tíðina. Ég skal ekki dæma um það, hvað hafi verið verst
eða mest í þeim efnum en allt er það illt.
17