Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 21

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 21
að halda áfram á sömu braut, en ná lengra og ná betri tökum á þessu verkefni. — Þingflokkurinn hefur verið ötull og ég staðhæfi að þingmenn flokksins hafa unnið vel og staðið sig vel á Alþingi. Það varðar bæði útfærslu á grundvallarstefnu- mörkun flokksins í átt til jafnaðar og réttlætis og dægur- mál þau sem upp koma. Það varðar bæði útfærslu á stefnumörkun seinasta flokksþings í atvinnumálum og afstöðu til efnahagsmála á líðandi stund. Þingmenn flokks- ins hafa haft frumkvæði að nýjum málatilbúnaði á Alþingi langt umfram hlutfallslegan þingmannafjölda í samanburði við aðra flokka. Og þeir hafa haft frumkvæði og forystu í umræðum um hlutfailslega langtum fleiri mál en aðrir þingmenn. — Þau stefnumarkandi frumvörp og tillögur, sem flutt hafa verið af þingmönnum flokksins og önnur, sem í undirbúningi eru, styrkja málefnalega stöðu flokks- ins og munu bera ávöxt fyrir flokkinn. Á undanförnum misserum hefur ísland notið einstaks góðæris í ytri skilyrðum. Það er ekki nóg með að útflutn- ingsafurðir okkar hafa hækkað í verði, heldur hefur Bandaríkjadollar styrkst miðað við Evrópumyntir um tugi prósenta. Þessi þróun hefur fært stórkostlega fjármuni inn í landið. Við seljum útflutningsafurðir okkar að lang- mestu leyti í dollurum, meðan innflutningurinn er í Evrópu- myntum. Sú búbót, sem hér um ræðir, er svo stórkostleg, að það má segja að hún sé sannkölluð himnasending. Þeim mun hörmulegra er að ekki skuli hafa tekist að nýta þennan stórkostlega möguleika til þess að bæta lífskjörin í landinu og ná verðbólgunni niður í viðunandi stig. Þessi búbót hefði átt að nýtast til þess að ná stórkostlegum árangri í efnahagsmálum. Svo er ekki. Ríkisstjórnin keppist nú við að mála glansmynd af 19

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.