Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Blaðsíða 24
áður. Það þarf engar reiknikúnstir til þess að sannfæra
okkur um það. Við getum dæmt sjálf. Við getum dæmt
út frá buddunni okkar. Þess vegna segi ég það enn og
aftur, nýja vísitölu verðum við að fá. Því falsi, þeim
svikum, sem við höfum verið beitt, verður að skila aftur.
Nei, þingfulltrúar góðir. Það hefur ekki verið um aukn-
ingu kaupmáttar að ræða á íslandi og hér býr fjöldi fólks
við hörmulega lág laun. En hefur þá verið lagður grund-
völlur að bjartari framtíð, auknu framtíðaröryggi. Við
Alþýðuflokksmenn höfum aldrei úr því dregið, að mikið
þyrfti á sig að leggja til þess að komast úr því verðbólgu-
fari, sem við höfum verið í að undanförnu. En við höfum
líka lagt áherslu á það, að í þeim aðgerðum yrði að
leggja grundvöll að bjartari framtíð. Svo er ekki. Sú
ríkisstjórn, sem nú situr, gerir ekkert og vill ekkert. Hún
hefur engar ráðstafanir gert til þess að búa að framtíðar-
öryggi þjóðarinnar. Hún hefur engar ráðstafanir gert til
þess að tryggja framtíðarlífskjör fólksins í landinu. Sú
ríkisstjórn sem situr, er dæmigerð íhaldsstjórn. Undir
hennar stjórn heldur fólk áfram að hrekjast unnvörpum
úr landi, einkuni ungt fólk. Það hreinlega gefst upp í
þeirri síbyljandi verðbólgu og við þá óvissu sem ríkir
hér um alla afkomu, við þá óvissu, sem gerir ókleift að
gera áform um framtíð sína, óvissu um kaup, óvissu um
kjör, óvissu um verðlag, óvissu um lánamál.
Við Alþýðuflokksmenn höfum lagt og leggjum áherslu
á það þegar við töluðum og tölum fyrir raunvaxta- og
verðtryggingarstefnunni, að árangurinn af henni í auknum
sparnaði yrði og verði varið til þess að auka langtímalán
til húsbyggjenda og dreifa greiðslubyrðinni. Um þetta
hefur ríkisstjórnin ekkert sinnt. Hún hrósar sér af þeim
aukna sparnaði, sem á sér stað í bankakerfinu. Sparnaði,
22