Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 55

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 24.10.1981, Qupperneq 55
að heimilið eitt geti veitt smábarni þá félagslegu örvun sem það á kröfur til og sem er forsenda fyrir eðlilegum félagsþroska þess. Þjóðfélagið verður líka að koma til móts við óskir og þarfir foreldra sem þurfa eða óska eftir að vinna utan heimilis. Þess vegna eiga allir foreldrar sem óska þess að geta komið börnum sínum í góða dagvistun, sem býður upp á sveigjanlegan dvalartíma í samræmi við vinnutíma foreldranna. Jafnframt á það að vera skýlaus réttur hvers barns að eiga kost á dagvistun við sitt 'hæfi. Á meðan ríki og sveitarfélög geta ekki fullnægt þeirri þörf sem er fyrir dagvistun barna, verða þessir aðilar að koma til móts við láglaunafjölskyldur með styrk til að mæta kostnaði við einkagæslu. Einnig verður að kanna vel alla möguleika til að þessi þjónusta verði sem ódýrust bæði fyrir foreldra og hið opinbera án þess þó að slaka á þeim kröfum sem gera verður til slíkra stofnana. Tómstundir — menningarstarf. í stefnuskrá Alþýðuflokksins segir: „Alþýðuflokkurinn telur tómstundir hin mikilvægustu lífsgæði og nýtingu þeirra skipta sköpum um velferð fólks.“ Leggja verður ríka áherslu á að fólki gefist næg tæki- færi til fjölbreyttrar tómstundastarfsemi, og hafi aðstöðu til íþróttaiðkana, ýmis konar félagsstarfa og til annarrar menningarstarfsemi. Það þarf að stuðla að því að fólk á öllum aldri geti verið saman í leik og starfi, börn, foreldrar, aldraðir. Þannig má í senn vinna gegn einmanaleika einstakling- 53

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.